Í fyrirlestrinum er fjallað um nokkrar helstu kenningar og aðferðir við hvatningu og hvernig hún tengist starfsánægju, vali á starfi,
starfsþróun og frammistöðu. Hvatning kemur fram í viðhorfum, hugsun og hegðun og þeir sem eru ánægðir í því sem
þeir eru að gera eru líklegri til að leggja sig fram og sýna áhuga og ákveðni í að ná árangri. Skort á hvatningu
má sjá í áhuga- og sinnuleysi um starfið, óstundvísi og fjarvistum og ýmsum vandamálum sem tengjast ágreiningi og gremju,
lítilli og lélegri samvinnu við lausn vandamála og andstöðu við breytingar og slæma aðlögun að þeim. M.a. verðurfarið yfir
hvað fræðimenn hafa verið að segja um starfsánægjuna og hvernig best er að hlúa að henni. Einnig er fjallað um endurgjöf (feedback) en hana
má sjá sem aðferð til að skýra og bæta samskipti milli fólks.
Kennari: Eyþór Eðvarðsson, M.A. vinnusálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.
Tími: Fim. 22. mars kl. 13:00-17:00
Verð: 14.500 kr.
Staður: stofa L202 Sólborg HA


