- Í samstarfi við geðsvið Landspítala
Námskeið í samtalstækni sem byggir á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar. Námskeiðið er haldið í samstarfi við
geðsvið Landspítala og ætlað fagfólki í heilbrigðisþjónustu. Markmiðið er að fagfólk á heilbrigðissviði geti
aukið færni sína í viðtölum við notendur þjónustunnar með því að styðjast við gagnreyndar aðferðir og
þannig uppfylla kröfur um hagkvæmni og árangur.
Farið verður í aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar sem eru notaðar í viðtölum: Uppbygging viðtals, undirstöðuatriði í
hugrænni atferlismeðferð, að skilja og skilgreina vanda (cognitive formulation), notkun Sókratískrar samtalstækni, viðhorf sem hafa áhrif á
samtalið, verkefni, æfingar, handleiðsla. Námskeiðið hentar einnig fleiri starfsstéttum sem nota viðtöl í starfi sínu eins og náms-
og starfsráðgjöfum.
Kennari: Dr. Agnes Agnarsdóttir, sálfræðingur á geðsviði Landspítala
Tími: Fim. 14. og fös. 15. apríl kl. 9:00-16:00
Staður: Sólborg
HA
Verð: 28.900 kr.


