Háskólinn á Akureyri

Þátttakendur eru þjálfaðir í að gera á skilmerkilegan hátt grein fyrir máli sínu,

Framsögn og rćđumennska

Þátttakendur eru þjálfaðir í að gera á skilmerkilegan hátt grein fyrir máli sínu, tala af öryggi fyrir framan hóp fólks, leggja áherslur á aðalatriði og auka þar með áhrifamátt sinn og útgeislun. Unnið er út frá verkefnum úr lífi og starfi þátttakenda og þeir þjálfaðir í að gera grein fyrir þeim á sannfærandi og hnitmiðaðan hátt. Með æfingu og endurgjöf leiðbeinanda er unnið markvisst að því að fá þátttakendur til að blómstra sem málssvara sinna verkefna og hópa.

Við flutning mun leiðbeinandi einnig fara yfir helstu gildrur í textasmíð og hvernig má varast þær. Ábendingar um hvernig eigi að semja hnitmiðaðan og sterkan texta. Fjallað er um notkun á glærum og síðan verða kenndar nýjar aðferðir sem nota má til að flytja textann þannig að hann verði lifandi, skemmtilegur og áhrifamikill.

 Ávinningur:

  • Aukið öryggi og færni í framkomu
  • Betri raddbeiting, öndun og líkamsbeiting
  • Þekking á eigin ræðustíl og styrkleikum
  • Áhrifameiri og skemmtilegri framkoma
  • Minni kvíði og aukin útgeislun

Gera má ráð fyrir klukkutíma undirbúningsvinnu milli tíma.

Kennari: María Ellingsen, leikkona, leikstjóri og fjölmiðlakona.
Tími: Föstud. 17. feb. og 24. feb. kl. 9:00-13:00 (2x4)
Verð: 29.900 kr.
Staður: stofa M201 Sólborg HA.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Fjóla Ţorsteinsdóttir

„Persónulegt námsumhverfi er ţađ sem heillar mig mest viđ Háskólann á Akureyri.“

Fjóla Ţorsteinsdóttir viđskiptafrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf