Háskólinn á Akureyri

Námskeiðið hefst á fyrirlestri þar sem gerð verður grein fyrir íslenskum fuglum með sérstakri

Fuglar og fuglaskođun

Námskeiðið hefst á fyrirlestri þar sem gerð verður grein fyrir íslenskum fuglum með sérstakri áherslu á Norðausturland.  Farið verður yfir einkenni íslensku fuglafánunnar, hvernig sé best að bera sig að við fuglaskoðun og hvað þurfi til. Sagt verður frá helstu tegundum fugla, greiningareinkennum lýst sem og búsvæðum. Áætlað er að fyrirlesturinn sé um klukkustund.

Eftir fyrirlesturinn er farið í fuglaskoðunarferð í Mývatnssveit og  fuglar þar skoðaðir og á leiðinni. Reynt verður að sjá sem flestar tegundir.

Kennari: Yann Kolbeinsson, fuglafræðingur á Náttúrustofu Norðausturlands
Tími: Laugardagurinn. 5. júní kl. 9:00-17:00
Staður: Fyrirlestur verður haldinn að Sólborg Háskólanum á Akureyri. Fuglaskoðunarferð fer fram í Mývatnssveit.Þeir sem sækja námskeiðið þurfa að keyra á sínum bílum en reynt verður að sameina í bíla eins og hægt er. Þátttakendur þurfa að sjá sér fyrir nesti/uppihaldi.
Verð: 14.900 kr.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Lára Kristín Jónsdóttir

„Ástćđan fyrir ţví ađ ég kaus ađ leggja stund á nám í hjúkrunarfrćđi er sú ađ mér finnst hjúkrun vera heillandi starf sem opnar fjölmargar dyr. “

Lára Kristín Jónsdóttir hjúkrunarfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf