Háskólinn á Akureyri

Námskeið á meistarastigi sem er 6 ECTS einingar er í samstarfi við heilbrigðis- og

Geđheilbrigđi: Líkamleg, tilfinningaleg og félagsleg nálgun

Námskeið á meistarastigi sem er 6 ECTS einingar er í samstarfi við heilbrigðis- og félagsvísindadeildir Háskólans á Akureyri. Einstaklingar sem vilja fá það metið til eininga inn í meistaranám skulu skila verkefnum. Námið hentar öllum þeim sem starf við heilbrigðis- og félagsþjónustu og sjálfstætt starfandi aðilum sem vinna með fólki.

Fordómar gagnvart geðrænum veikindum eru því miður enn ríkjandi í samfélaginu sem mikilvægt er að vinna gegn m.a. með fræðslu.

Námsmarkmið:

  • Að skoða geðheilbrigði frá hinum ýmsu sjónarhornum
  • Að dýpka og útfæra þekkingu þátttakanda á geðheilbrigði og úrlausnum
  • Að kynna hvernig einstaklingar með geðræn vandamál geti öðlast aukin lífsgæði, t.d. með virkri þátttöku í samfélagi
  • Að draga fram hin ýmsu sjónarhorn og viðhorf  gagnvart úrvinnslu og meðferð geðrænna raskana
  • Að kynna nýjungar í rannsóknum og greiningu á geðsjúkdómum

Viðfangsefni námskeiðsins:

  • Yfirlit yfir helstu flokka og einkenni geðrænna raskana
  • Taugalíffræði geðrænna raskana
  • Erfðir eða atlæti – orsakir geðrænna raskana
  • Hinar ýmsu meðferðaleiðir
  • Geðrænar raskanir og fjölskylda
  • Geðræn endurhæfing
  • Samfélagsleg áhrif geðrænna raskana
  • Sjónarmið notenda
  • Geðrækt

Lesefni:
Valdar greinar

Fyrirkomulag:
Nemendur sækja tvær kennslulotur föstudag og laugardag.
Kennsla fer fram í fyrirlestrum, hóp- og einstaklingsverkefnum. Hópverkefni: Sett fyrir efni sem hóparnir eiga að gera stutta rannsóknaráætlun upp úr sem þeir svo kynna og fá fá endurgjöf á. Einstaklingsverkefni: Ritgerð skrifuð milli lota.

Umsjónarkennari: Ársæll Már Arnarson, dósent við HA auk þess koma að kennslunni ýmsir sérfræðingar á úr háskólum og atvinnulífi.
Kennslutími: 24. og 25. sept. og 5. og 6. nóv. kl. 13:30-17:00 á fös. og 9:00-16:00 á lau.
Staður: Stofa M-202, Sólborg HA
Verð: 43.500 kr.

 

Nemendur

Starfsmenn

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 
Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Alma Kristín Gísladóttir

„Ţađ kom aldrei neitt annađ til greina en ađ fara í HA. Námiđ er spennandi og opnar ýmsa möguleika til framtíđar. “

Alma Kristín Gísladóttir nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf