Námskeiðið er miðað að þörfum allra sem koma að gæða– og ferlastjórnun þ.e. gæðastjóra, skjalastjóra, yfirmanna eða annarra starfsmanna sem koma að vinnu við gerð handbóka, verklagsreglna eða vinnuleiðbeininga. Gerð verklagsreglna nýtist á mörgum sviðum fyrirtækis, óháð kerfisnotkun og tryggir samræmd og stöðluð vinnubrögð í samræmi við skipulögð vinnuferli fyrirtækisins.
Á námskeiðinu eru kennd formleg og viðurkennd vinnubrögð við gerð verklagsreglna og vinnulýsinga og farið yfir aðferðafræði
gæðastjórnunar. Gerðar eru æfingar í ritun verklagsreglna með flæðiritum.
M.a. er farið yfir:
* Ferilhugsun og hvað er ferill
* Flæðirit og skilgreiningu ferils frá upphafi til enda
* Gerð Cross Functional flæðirita
* Hvernig skilgreina á inntak, úttak og ábyrgð í flæðiriti
* Hvernig skilgreina skjöl og gögn í ferlum
* Ritun verklagsreglu, form og tilvísun í kröfur
Yfir 1.100 starfsmenn frá 650 fyrirtækjum og stofnunum hafa sótt námskeiðið.
Kennari: Kristín Björnsdóttir, rekstrarhagfræðingur og ráðgjafi hjá FOCAL
Tími: Fim. 8. mars kl. 13:00-17:00
Verð: 21.780
Staður: Sólborg HA


