Háskólinn á Akureyri

 - Í samstarfi við Starfsmennt. Boðið verður upp á námið í

Markađssetning vöru og ţjónustu (ígildi 6 ECTS eininga)

 - Í samstarfi við Starfsmennt. Boðið verður upp á námið í fjarkennslu

Námskeiðið er ætlað öllum sem starfa við sölu- og markaðssetningu á vöru og þjónustu eða hafa brennandi áhuga á markaðsmálum fyrirtækja.

Tilgangur og markmið: Að auka skilning þátttakenda á hlutverki faglegs markaðsstarfs innan fyrirtækja og samfélags. Veitt er yfirsýn yfir fjölbreytileika markaðsstarfsins og mikilvægi stjórnunar þess. Inntak markaðsfræðinnar er kynnt, helstu grundvallarhugtök og kenningar sem fyrirtæki og samfélög nýta sér. Áhersla er á hagnýta nálgun, svo þátttakendur geti fært sér í nyt það sem farið er í, á sínum vinnustað. Unnin eru hópverkefni þar sem unnið er að hagnýtum lausnum í markaðsstarfi íslenskra fyrirtækja. Markaðsaðstæður á Íslandi eru kynntar.
Meðal efnis sem farið er í: Þjónustumarkaðsfræði, markaðssetningu á netinu, kynningarmál, samfélagslega ábyrga markaðssetningu.
Námsmat: Mæting í tíma (75%) sem gildir 10% og verkefni sem gilda 90%.
Námsefni: Kotler, Keller, Brady, Goodman og Hansen (2009). Marketing Management, Prentice Hall. Bókin er lögð til grundvallar kennslunni en ekki er skylda að kaupa hana. Einnig greinar í tímaritum sem kennarar benda á.

Kennarar: Hafdís Björg Hjálmarsdóttir, lektor (hafdisb@unak.is) og Vera Kr. Vestmann Kristjánsdóttir, aðjúnkt (verak@unak.is) við Háskólann á Akureyri. Viðtalstími eftir samkomulagi.
Kennslutilhögun: Námskeiðið er 36 kennslustundir. Kennsla fer fram í fyrirlestrum, verkefnavinnu og umræðum. Nemendum gefst tækifæri til að eiga samskipti sín á milli og við kennara á innri vef háskólans (Moodle).
Vegna óviðráðanlegra orsaka frestast námskeiðið til haustsins 2012.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Lára Kristín Jónsdóttir

„Ástćđan fyrir ţví ađ ég kaus ađ leggja stund á nám í hjúkrunarfrćđi er sú ađ mér finnst hjúkrun vera heillandi starf sem opnar fjölmargar dyr. “

Lára Kristín Jónsdóttir hjúkrunarfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf