Háskólinn á Akureyri

ART (Aggression Replacement Training)Réttindanámskeið í ART þjálfun - á vormisseri 2012 Farið verður

Nám samhliđa starfi

ART (Aggression Replacement Training)
Réttindanámskeið í ART þjálfun - á vormisseri 2012

Farið verður yfir þá þrjá þætti sem eru undirstaðan í ART þjálfun: félagsfærni, reiðistjórnun og siðferðisþjálfun fyrstu þrjá dagana. Æft verður kennsluformið sem er ríkjandi í ART tímum, þ.e. hlutverkaleikir og umræðuform. Að námskeiðinu loknu fara þátttakendur af stað með hópa í skólum eða öðrum starfsvetfangi. Þjálfunin er samtals þrír tímar á viku í 12 vikur.  Á meðan á þjálfun stendur fer fram handleiðsla, þátttakendur fá heimsókn í ART tíma og á eftir er farið yfir hvað er að takast vel og hvað mætti gera betur. Síðan mætir hópurinn aftur allur saman, sýnir myndbandsupptökur af eigin ART kennslustund og hópurinn ræðir myndböndin. Gert er ráð fyrir að fjórði dagurinn sé tímasettur nálægt miðbiki 12 vikna þjálfunarinnar. Þátttakendur skila samantekt á vinnu sinni í lok námskeiðs fyrir útskrift að 12 vikum loknum.
Nánari upplýsingar hér
Námið er hafið

Markaðssetning vöru og þjónustu (ígildi 6 ECTS ein)
    Haustið 2012 – Einnig í fjarkennslu.

Ætlað öllum áugasömum um sölu- og markaðssetningu á vöru og þjónustu.
Tilgangur og markmið: Auka skilning þátttakenda á hlutverki faglegs markaðsstarfs innan fyrirtækja og samfélags. Veita yfirsýn yfir fjölbreytileika markaðsstarfsins og mikilvægi stjórnunar þess. Kynna fyrir þátttakendum inntak markaðsfræðinnar, helstu grundvallarhugtök, og kenningar sem fyrirtæki, og samfélög nýta sér í markaðsstarfi sínu. Áhersla er lögð á verkefnavinnu og þjálfun í að finna hagnýtar lausnir í markaðsstarfi íslenskra fyrirtækja. Kynna fyrir þátttakendum markaðsaðstæður á Íslandi.
Námið er í samstarfi við Starfsmennt sem greiðir fyrir sína félagsmenn.
Námskeiðið frestast til haustsins 2012 vegna óviðráðanlegra orsaka.
Skráningaform má nálgast undir skráning til vinstri á síðunni.


Verkefnastjórnun – leiðtogaþjálfun er fjölbreytt nám sem ætlað er þeim sem vilja öðlast þekkingu og þjálfun á sviði verkefnastjórnunar og efla leiðtogahæfileika sína. Námið gagnast stjórnendum og starfsmönnum fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka og í daglegu lífi.
Námið er ígildi 30 ECTS háskólaeininga og skiptist í fjögur 52 kennslust. námskeið. Það byggir á að efla fjóra megin færniþætti nemenda: Stefnumótunarfærni, leiðtoga­færni, skipulagsfærni og samskiptafærni. Verkefnastjórnun – leiðtogaþjálfun spannar tvö misseri; unnið er með færniþættina yfir allan námstímann. Kennslufyrirkomulag: Námið er skipulagt með þarfir landsbyggðarfólks í huga. Nemendur koma í Háskólann á Akureyri í tvær kennsluvikur á hvoru misseri. Kennsluvikurnar eru með nokkurra vikna millibili og á þeim tíma er nemendum ætlað að vinna að verkefnum. Námið verður kennt á grunni kennslubóka á íslensku, um fyrrgreinda færniþætti, sem koma út um þessar mundir hjá JPV útgáfu.
Námslýsing
Námið er hafið



Nemendur

Starfsmenn

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 
Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Barbara Helgadóttir

„Háskólinn á Akureyri er mjög góđur skóli. Ég er sérstaklega ánćgđ međ símatiđ sem er í sálfrćđinni.“

Barbara Helgadóttir nemandi í sálfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf