Í þessu námskeiði verður farið yfir helstu skattalegu atriði sem einstaklingar í eigin atvinnurekstri þurfa að hafa í huga.
Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem stunda sjálfstæðan rekstur og þeim sem sjá um skattskil slíkra einstaklinga.
Farið verður yfir öll hagnýt atriði, eins og hvernig eigi að skrá sig á launagreiðendaskrá, sækja um vsk. númer, hvernig standa eigi
að skilum staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda og hvernig reikna eigi sér laun í eigin rekstri.
Í námskeiðinu verður einnig farið yfir önnur lagaatriði er varða réttindi og skyldur einstaklinga í eigin atvinnurekstri, bæði sem snúa að fjármálafyrirtækjum og opinberum aðilum. Þá verður farið yfir reglur sem gilda um gjaldfærslu rekstrarkostnaðar í atvinnurekstri og reynt að leiðbeina fólki í því hvernig sé best að haga rekstri í núverandi lagaumhverfi.
Námskeiðið gefur 3 FLE einingar í flokknum skatta- og félagarétti.
Kennari: Sævar Þór Jónsson, lögfræðingur og hagfræðingur. Sævar starfaði sem yfirlögfræðingur hjá
skattstjóranum í Reykjavík en rekur nú Lögmannsstofuna Lagarök.
Tími: Fös. 9. mars kl. 9:00-12:00. Ath. breyttur tími.
Verð: 12.900 kr.
Staður: stofa L203 Sólborg HA.


