Háskólinn á Akureyri

Námskeið í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála. Stjórnendur

Samráđ viđ starfsmenn á erfiđum tímum - Hvađa ađferđir skila árangri?

Námskeið í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála.
Stjórnendur standa, nú sem aldrei fyrr, frammi fyrir kröfum um hagræðingu í rekstri, endurskipulagningu á starfsemi og endurskoðun verkferla.  Samráð við starfsmenn er lykilatriði til að vel takist til og tilsettum árangri sé náð.

Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig skilvirk samskipti innan skipulagsheilda eru byggð upp,  mismunandi form og aðferðir samráðs og  hvenær þau eiga helst við. Markmið með námskeiðinu er að styðja þátttakendur í að innleiða samráðsaðferðir á hagnýtan og árangursríkan hátt í opinberri starfsemi.    

Fjallað verður um:

  1. Mikilvægi samráðs innan opinberra stofnana og sveitarfélaga, til þess að byggja almennt upp skilvirk samskipti innan skipulagsheilda, bæði á krefjandi tímum og á tímum breytinga.
    -Farið verður m.a. annars yfir skilgreiningar samráðs innan stofnana og hagnýt dæmi um hvernig    samráð hefur nýst.
    -Fjallað verður um tengsl samráðs við viðhorf og frammistöðu starfsfólks ásamt áhrif samráðs á stofnanamenningu.
  2. Skýra tengsl samráðs við ákvarðanatöku innan stofnana. 
    -Fjallað verður um hvenær samráð á helst við til að styðja við ákvarðanatöku og hvenær væri  betra  að nota aðrar aðferðir 
  3. Kynna mismunandi form samráðs og hvenær þau eiga helst við.
    - Farið verður yfir mismunandi aðferðir og hagnýtingu þeirra.

Kennari: Arndís Jónsdóttir, stjórnunarráðgjafi MSc í vinnusálfræði.  Hún hefur sérhæft sig í einstaklingsþjálfun stjórnenda og teyma (executive coaching).
Tími: Þri. 21. sept. kl. 13:00-17:00.
Staður: Stofa M203 - Sólborg HA.
Verð: 11.500 kr.

Arndís Jónsdóttir er sjálfstætt starfandi stjórnunarráðgjafi og hefur sérhæft sig í einstaklingsþjálfun stjórnenda og teyma (e. executive coaching)  ásamt því að sjá um ýmsar mælingar og úrbótaverkefni á sviði stjórnunar og starfsumhverfis.  Hún hefur unnið að ýmsum samráðsverkefnum bæði meðal starfsfólks og meðal hagsmunaðila, hérlendis og í Bretlandi.  Hún lauk BA prófi frá Macalester College í Bandaríkjunum 1997 og MSc í vinnusálfræði frá UMIST í Bretlandi 1999.  Hún veitti mannauðsráðgjöf ParX Viðskiptaráðgjöf IBM forstöðu frá 2006-2009 og hefur undanfarin ellefu ár starfað sem stjórnunarráðgjafi, aðallega fyrir bresk fyrirtæki og stofnanir sem og alþjóðleg fyrirtæki.  Hún er meðlimur í breska sálfræðingafélaginu og er stofnfélagi i Special Group in Coaching Psychology innan breska sálfræðingafélagsins.  Hún sat í stjórn Félags íslenskrar markþjálfunar við stofnun félagsins og situr nú í stjórn TM Software.  Arndís hefur kennt stjórnun og vinnusálfræði í háskólum á Íslandi, ásamt því að hafa sinnt kennslu í UMIST og Manchester Busimess School í Bretlandi.

Þetta námskeið hefur fengið toppeinkunn í mati þátttakenda.

 

Nemendur

Starfsmenn

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 
Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Helga Sif Eiđsdóttir

„Viđskiptafrćđinámiđ í HA er krefjandi en jafnframt skemmtilegt og áhugavert. “

Helga Sif Eiđsdóttir viđskiptafrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf