Háskólinn á Akureyri

Brautskráning 27. janúar 2012 Símenntun Háskólans á Akureyri útskrifaði 27. janúar 20 nemendur

2012

Brautskráning 27. janúar 2012

Símenntun Háskólans á Akureyri útskrifaði 27. janúar 20 nemendur úr Svæðisleiðsögunámi á Norðurlandi og tveir til viðbótar munu ljúka náminu í vor. Svæðisleiðsögunámið sem var haldið í samstarfi við Leiðsöguskólann byggði á námskrá fyrir leiðsögunám sem gefin er út af menntamálaráðuneytinu.
Markmið námsins var að búa nemendur undir að fylgja ferðamönnum um Norðurland og að standast kröfur ferðaþjónustunnar um áreiðanleika og fagleg vinnubrögð.  Svæðisleiðsögunámið sem stóð yfir síðastliðin tvö misseri var fjölbreytt. Fjallað var um og atvinnuvegi, jarðfræði, sögu, menningu, ferðamannastaði og leiðsögutækni svo nokkuð sé nefnt og komu margir kennarar og sérfræðingar í ferðaþjónustu að því. Kennt var vikulega síðdegis síðastliðið ár eftir hefðbundinn vinnudag og farnar vettvangsferðir um svæðið með SBA - Norðurleið. Námið var að hluta til í fjarkennslu hjá Farskólanum á Sauðárkróki og á svæði Þekkingarnets Þingeyinga.
 
Við útskriftina flutti Matti Sarinnen gítarleikari tvö frumsamin lög.

Ávörp fluttu Stefán Sigurðsson háskólarektor, Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri, Jónas Helgason kennari og leiðsögumaður og Helga Sigurðardóttir fyrir hönd nemenda.

Myndirnar eru af nemendum og forsvarsmönnum námsins.

Nemendur í svæðisleiðsögunámi

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nemendur í svæðisleiðsögunámi

Blar Gulur Hvitur
A A A
Áslaug Karen Jóhannsdóttir

„Fjölmiđlafrćđin er ný og spennandi námsgrein og ţess vegna valdi ég hana.“

Áslaug Karen Jóhannsdóttir blađamađur á Skessuhorni
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf