Háskólinn á Akureyri

Brautskráning 23. maí 2008 Símenntun Háskólans á Akureyri brautskráði 23. maí sl. 10 nemendur

2008

Brautskráning 23. maí 2008

Símenntun Háskólans á Akureyri brautskráði 23. maí sl. 10 nemendur sem hafa lagt stund á fjögurra missera rekstrar- og stjórnunarnám ætlað talsmönnum stéttarfélaga ASÍ og BSRB. Brautskráning fór fram í Listasafni ASÍ.

Námið sem er sérskipulagt í samstarfi við viðskipta- og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri og Félagsmálaskóla alþýðu hófst í september 2004 og var skipulagt með þeim hætti að það mátti hefja í byrjun hvers misseris. Þá komu nemendur í Háskólann á Akureyri til að kynnast innbyrðis, kennurum, skólanum og þeirri tækni sem beitt er við kennsluna. Á hverju misseri hafa verið kenndar þrjár námsgreinar ein í senn og fara fyrirlestrar fram á Símenntunarmiðstöðvum þar sem nemendur eru hverju sinni. Námsgreinar eru: haglýsing, opinber stjórnsýsla, hagfræði, vinnuréttur, fjárhagsbókhald og greining ársreikninga, hagkerfi, stjórnun, upplýsingatækni, starfsmannastjórnun, áætlanagerð, stefnumótun og fjármál. Próf og verkefnaskil fara fram í vefnámsumhverfi háskólans (Blackboard). Alls hafa 47 talsmenn verkalýðshreyfingarinnar lokið þessu námi.
Ávörp fluttu: Gylfi Arnbjörnsson framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, Finnbjörn A. Hermannsson formaður skólanefndar Félagsmálaskóla alþýðu, Helgi Bergs staðgengill rektors og Björn Ágúst Sigurjónsson fyrir hönd nemenda.

Myndin er af nemendum og forsvarsmönnum námsins.

simenntun_brautskraning_640

 

 

 

 

 

Nemendur

Starfsmenn

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 
Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Barbara Helgadóttir

„Háskólinn á Akureyri er mjög góđur skóli. Ég er sérstaklega ánćgđ međ símatiđ sem er í sálfrćđinni.“

Barbara Helgadóttir nemandi í sálfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf