Brautskráning 8. júní 2007
Símenntun Háskólans á Akureyri brautskráði þann 8. júní 2007 sjö nemendur sem hafa lagt stund á fjögurra missera rekstrar- og stjórnunarnám ætlað talsmönnum stéttarfélaga ASÍ og BSRB og fór brautskráning fram í Listasafni ASÍ.
Námið er sérskipulagt í samstarfi við viðskipta- og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri og Félagsmálaskóla alþýðu. Einn af kostum námsins er sveigjanleikinn, en það er hægt að hefja í byrjun hvers misseris. Þá koma nemendur í Háskólann á Akureyri til að kynnast innbyrðis, kennurum, skólanum og þeirri tækni sem beitt er við kennsluna. Á hverju misseri eru kenndar þrjár námsgreinar ein í senn og fara fyrirlestrar fram á símenntunarmiðstöðvum vítt og breytt um landið eða þar sem nemendur eru hverju sinni. Próf og verkefnaskil fara fram í vefnámsumhverfi háskólans (Blackboard). Námsgreinar eru: haglýsing, opinber stjórnsýsla, hagfræði, vinnuréttur, fjárhagsbókhald og greining ársreikninga, hagkerfi, stjórnun, upplýsingatækni, starfsmannastjórnun, áætlanagerð, stefnumótun og fjármál. Alls 120 kennslustundir sem teljast jafngilda 18 háskólaeiningum. Fyrir um ári síðan lauk fyrsti hópurinn, alls 25 manns, námi og í desember síðastliðnum luku því sjö nemendur. Næsta námslota hefst 7. september nk.
Ávörp fluttu: Ingibjörg R. Guðmundsdóttir varaforseti ASÍ, Guðmundur Gunnarsson formaður skólanefndar Félagsmálaskóla alþýðu, Ingi Rúnar Eðvarðsson, prófessor við viðskipta og raunvísindadeild og Lilja K. Sæmundsdóttir fyrir hönd nemenda.
Myndir eru af nemendum og forsvarsmönnum námsins.




