Útskrift 5. júní 2009
Símenntun Háskólans á Akureyri útskrifaði 7. júní sl. 21 nemanda sem hafa lagt stund á þriggja missera, 54 ECTS eininga,
nám með starfi í rekstrar- og viðskiptafræðum. Námið sem var í samstarfi við viðskipta- og raunvísindadeild hófst á
vormisseri 2008.
Kenndar voru þrjár námsgreinar á misseri 45 kennslustundir hver. Þessar námsgreinar voru: Stjórnun, fjárhagsbókhald og
ársreikningar, upplýsingatækni og fræðileg vinnubrögð, rekstrarhagfræði, lögfræði, markaðsfræði, skattskil,
mannauðsstjórnun og fjármál.
Kennt var í sex 21 kennslustunda lotum á misseri eða 18 lotum samtals. Alls var námið 405 kennslustundir. Þetta fyrirkomulag hefur gert fleirum en Eyfirðingum
kleift að sækja námið og komu nemendur víða að.
Blásarakvartett frá Tónlistarskóla Akureyrar undir stjórn Þorkels Jóhannssonar flutti fjögur íslensk lög.
Ávörp fluttu: Þorsteinn Gunnarsson háskólarektor og Gunnar Sturla Gíslason fyrir hönd nemenda.







