Skráningu á námskeið lýkur að jafnaði um viku áður en það á að hefjast. Kennitala greiðanda námskeiðs þarf að koma fram við skráningu. Ef vinnuveitandi greiðir námskeið fyrir þátttakanda þarf kennitala vinnuveitandans að koma fram.
.... á Netinu
Skráning á Netinu fer fram með því að senda útfyllt skráningarform, sem er við námskeiðslýsingar, rafrænt.
.... í síma
Skráning á námskeið er í síma 460-8091.
Einnig er hægt að skrá þátttöku á námskeið með því að senda tölvupóst á netfangið simennt@unak.is.
Staðfesting á skráningu
Haft er samband við væntanlega þátttakendur nokkrum dögum fyrir fyrirhugað námskeið til staðfestingar á þátttöku þeirra.
Tilkynna þarf forföll með eins góðum fyrirvara og unnt er.
Greiðslufyrirkomulag
Námskeiðsgjald greiðist áður en námskeið hefst eða samkvæmt reikningi sem sendur er vinnuveitanda. Þeir sem hafa staðfest
þátttöku en mæta ekki á námskeið fá sendan reikning fyrir námskeiðsgjaldi.
Námsleiðir Símenntunar
Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fá námsgjald fellt niður þótt nemandi
hætti í námi áður en námstíma lýkur.
Styrkir
Benda má á að ýmis stéttar- og starfsmannafélög styrkja félaga sína til sí- og endurmenntunar


