Háskólinn á Akureyri

 - Ætlað öllum sem hafa með starfsmannamál að gera Aðferðir til árangurs í mikilvægum

Starfsmannastjórnun: Leiđir til árangurs

 - Ætlað öllum sem hafa með starfsmannamál að gera

Aðferðir til árangurs í mikilvægum samtölum
Í stórri rannsókn sem fjallað er um í bókinni Crucial Conversations eftir Kerry Patterson, Josep Grenny, Ron McMillan og Al Switzler sem gerð var á vinnustöðum þar sem fólk var beðið að nefna þá sem eru virkilega góðir í samskiptum kom fram þeir bestu höndla erfiðar aðstæður mjög vel þ.e. þegar skoðanir eru ólíkar, mikið er í húfi og tilfinningar miklar. Þannig aðstæður draga oft fram það versta hjá fólki sem birtist t.d. í því að það verður reitt, sárt, tortryggið og reynir jafnvel að koma sér undan samtalinu eða ná sér niður á viðmælandanum.
Rannsóknir sýna að nokkur atriði greina þá bestu frá hinum. Þeir hafa skýrari sýn á útkomuna úr samtalinu, fyrir sjálfan sig, viðmælandann og samskiptin. Þeir skapa traust í upphafi samtals,  eru læsir á eigin viðbrögð og viðmælenda sinna og grípa tímanlega inn í áður en samtalið afvegaleiðist. Þeir nýta sér uppbyggilegar aðferðir til að hvetja til umræðna og koma fram með eigin skoðanir á réttum tíma. Þeir nota virka hlustun til að tryggja að réttur skilningur sé á milli viðmælenda og ákvarðanir séu teknar með viðeigandi aðferðum og í sátt viðmælenda.
Á námskeiðinu er farið yfir þessa færniþætti og þeir þjálfaðir með hlutverkaæfingum. Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja ná meiri árangri í samtölum þar sem skoðanir eru ólíkar, hagsmunir miklir og tilfinningar geta hlaupið upp, þ.m.t. stjórnendum, sérfræðingum, fagfólki, ráðgjöfum, sölumönnum, fjölmiðlafólki, sálfræðingum, læknum, kennurum og foreldrum.
Kennari: Eyþór Eðvarðsson, M.A. vinnusálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.
Tími: Þri. 17. jan. kl. 13:00-17:00

Ráðningar: Að velja rétta fólkið
Margar leiðir eru færar til að velja rétta starfsfólkið og lykilspurningin í ráðningarferlinu er því hvernig á að finna þann einstakling sem mun koma til með að standa sig best við að uppfylla þær kröfur sem starfið gerir til hans. Mikilvægt er að vanda vel til verksins því ef ekki er vel að málum staðið sitja allir uppi með afleiðingarnar. Starfsmaðurinn fer flótlega að upplifa óánægju vegna þess að starfið hentar ekki og ergelsi kemur fram hjá samstarfsfólki. En hvernig á að finna þann hæfasta? Rannsóknir hafa sýnt að hefðbundnar leiðir eins og óformleg viðtöl og meðmælabréf eru ekki góð tæki til að spá fyrir um frammistöðu starfsmanns. Betri og ítarlegri aðferðir sem meta hæfileika og eiginleika starfsmanna og gefa gott forspárgildi um væntanlega frammistöðu einstaklinga eru t.d. hæfnismiðstöð (Assessment Center), persónuleikapróf og hegðunartengd ráðningarviðtöl.
Á námskeiðinu er farið yfir helstu atriðin varðandi ráðningar þ.e. starfsgreiningu, leit að umsækjendum, forval, ráðningarviðtalið og ákvörðunartökuna sjálfa. Fjallað er um aðferðafræðina í viðtalinu sjálfu, undirbúninginn, samtalstækni og spurningar. Sérstök áhersla er lögð á að ráðningaraðili komist að því á áreiðanlegan hátt hvernig umsækjandi hefur staðið sig á þeim þáttum sem skipta máli varðandi árangur í því starfi sem ráðið er í. Farið er yfir helstu mistök í ráðningarviðtölum eins og ályktunarvillur. Þátttakendur fá ítarlega þjálfun í framkvæmd ráðningarviðtala.
Kennari: Ingrid Kuhlman, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.
Tími: Mið. 22. feb. kl. 13:00-17:00

Að skapa liðsanda og góðan vinnumóral
Starfsánægja er eitt af því sem mestu máli skiptir á vinnustöðum. Hún smitar útfrá sér og skapar góðan starfsanda. Nokkur atriði hafa mikil áhrif á starfsánægju einstaklinga. Sem dæmi þá virðist skipta miklu máli vita hvað maður á að gera. Annað er að einstaklingar viti hvernig þeir standa sig. Félagslegi þátturinn er einnig mikilvægur því að einstaklingur sem upplifir sig ekki sem hluta af heildinni er ólíklegur til að upplifa mikla starfsánægju.
Í fyrirlestrinum er fjallað um nokkrar helstu kenningar og aðferðir við hvatningu og hvernig hún tengist starfsánægju, vali á starfi, starfsþróun og frammistöðu. Hvatning kemur fram í viðhorfum, hugsun og hegðun og þeir sem eru ánægðir í því sem þeir eru að gera eru líklegri til að leggja sig fram og sýna áhuga og ákveðni í að ná árangri. Skort á hvatningu má sjá í áhuga- og sinnuleysi um starfið, óstundvísi og fjarvistum og ýmsum vandamálum sem tengjast ágreiningi og gremju, lítilli og lélegri samvinnu við lausn vandamála og andstöðu við breytingar og slæma aðlögun að þeim. M.a. verður farið yfir hvað fræðimenn hafa verið að segja um starfsánægjuna og hvernig best er að hlúa að henni. Einnig er fjallað um endurgjöf (feedback) en hana má sjá sem aðferð til að skýra og bæta samskipti milli fólks.
Kennari: Eyþór Eðvarðsson, M.A. vinnusálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.
Tími: Fim. 22. mars kl. 13:00-17:00

Starfsmannasamtöl: Leið til árangurs
Fjöldi íslenskra fyrirtækja heldur starfsmannasamtöl, þ.e. að stjórnandi og starfsmaður setjist niður, oftast einu sinni á ári, og ræði frammistöðu beggja. En þá eru rædd m.a. upplifun starfsmannsins í vinnunni, starfsánægja, stjórnun, starfið sjálft, samskipti og líðan á vinnustað, markmið og hvaðeina annað sem stjórnandi og starfsmaður telja að þurfi að ræða. Starfsmannasamtal á að vera uppbyggilegt og opinskátt samtal. Í samtalinu gefst tækifæri á að bæta hlutina, skilgreina markmið starfsmannsins, ræða starfsframa og aukna ábyrgð og skilgreina þörf starfsmannsins á starfsþróun og fræðslu. Starfsmannasamtal býður líka upp á tækifæri til að hrósa starfsmanni fyrir vel unnin störf. Gildi starfsmannasamtala er ótvírætt en það er eins og með margt annað, það er ekki sama hvernig þau eru framkvæmd og það eina sem er auðvelt er að gera það illa.
Með starfsmannasamtali verður til staður og stund þar sem stjórnandi og starfsmaður setjast niður og ræða saman með skipulögðum hætti um verkefni starfsmannsins, verksvið og ábyrgð ásamt umbótum. Það er mjög gagnlegt fyrir stjórnanda að setjast niður með starfsmanni einu sinni á ári til að ræða frammistöðu í víðu samhengi. Til þess gefst ekki tími í dagsins önn. Í samtalinu skapast möguleiki til að draga fram hindranir í starfi sem ekki hefur gefist umræðugrundvöllur fyrir. Starfsmannasamtal gerir stjórnandanum kleift að vinna með starfsmönnum sínum að betri árangri með því að veita þeim heiðarlega endurgjöf og hvatningu og vinna sameiginlega að mikilvægum umbótum. Í starfsmannasamtali er ekki eingöngu litið til baka heldur líka fram á veginn. Í samtalinu gefst t.d. tækifæri á að skilgreina fræðsluþarfir starfsmannsins ásamt óskum um starfsþróun. Sé starfsmannasamtal framkvæmt á faglegan hátt mun það bæta sambandið milli stjórnanda og starfsmannsins.
Kennari: Ingrid Kuhlman, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.
Tími: Þri. 24. apríl kl. 9:00-13:00

Verð: 48.500 kr. Stök námskeið kosta 14.500 kr.
Staður: stofa L202 Sólborg HA

Blar Gulur Hvitur
A A A
Ómar Karlsson

„Háskólinn á Akureyri er ađgengilegur og vingjarnlegur skóli sem býđur upp á gott nám“

Ómar Karlsson nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf