Háskólinn á Akureyri

B.Sc. námi í sjávarútvegsfræðum má skipta í þrjá skilgreinda hluta, auðlindin og

Námskeiđ

B.Sc. námi í sjávarútvegsfræðum má skipta í þrjá skilgreinda hluta, auðlindin og nýting hennarviðskipta og hagfræðigreinar og  raungreinagrunnur. Að auki eru verkefnaáfangar þar sem verkefnin sem unnin eru tengjast einhverjum fyrrgreindra þriggja hluta. Námið byggir að talsverðu leyti á samkennslu og er um einn þriðji námsins samkenndur með öðrum námslínum í auðlindafræðum (líftækni og umhverfis- og orkufræðum) og um einn þriðji að auki samkenndur með viðskiptafræðum. Eftir stendur þá þriðjungur námsins sem eru sérgreinar í sjávarútvegsfræðum. Samsetningu námsins eftir árum og önnum má sjá hér að neðan en hafa ber þó þann fyrirvara að áfangar færast stundum milli ára og missera.


1. ár
 
2. ár
  3. ár
 
 Haust  Vor  Haust
 Vor  Haust  Vor
Stærðfræði I Stærðfræði II Fjárhagsbókhald Ársreikningurinn Markaðsfræði I Stjórnun I
Efnafræði I Efnafræði II Fjármál I Rekstrarhagfræði Þjóðhagfræði Auðlindahagfræði
Líffræði Örverufræði Eðlisfræði I Hópverkefni Valgrein Lokaverkefni I
Fræðil. vinnubrögð Tölfræði Sjávarlíffræði Stofnstærðarfræði
Veiðtækni Lokaverkefni II
Ísl. sjávarútvegur Fiskifræði Haf- og veðurfræði
Matvælafræði fiska Fiskeldi
Vinnslutækni

hakon_ea

Markmiðið með þessum greinum er að gera nemandanum kleift að skilja og þekkja helstu hugtök, ferla og tegundir í vistkerfi hafsins, hvernig nýtingu auðlindarinnar er stjórnað og hvaða tækni og aðferðir eru notaðar frá veiðum til vinnslu. Áfangar þessir eru flestir einungis kenndir í sjávarútvegsfræðum en eru þó í boði sem valgreinar fyrir aðra nemendur.

Lobster

Markmiðið með þessum greinum er að kenna nemendanum grunnatriði í viðskipta- og hagfræði og gera þá fjármálalega læsa. Áfangar þessi eru samkenndir með viðskiptafræðideild.

Markmiðið með þessum greinum er að kenna nemendanum grunnatriði í raunvísindum og tölulegri greiningu sem eru undirstaða undir frekara námi í sjávarútvegsfræðum. Áfangar þessi eru samkenndir með öðrum línum í aðlindafræðum og sumir þeirra einnig með viðskiptafræðum.

Verkefnavinna og val

Markmiðið með þessum greinum er að þjálfa nemandann í að beita þekkingu sinni og því sem hann hefur lært til að leysa hagnýt vandamál, einn eða í hóp. Auk þess miða verkefnin að því að þjálfa nemendur í frumkvæði og sjálfstæðum vinnubrögðum þar sem reynir á rökhugsun og greiningarfærni. Þá miða kennsluaðferðir deildarinnar að því að nemendur öðlist færni í notkun upplýsingatækni og hugbúnaðar er nýtist í starfi. Áhersla er á að verkefnavinna þessi sé á sérsviði nemandans.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Ćgir Ţór Eysteinsson

„Fjölmiđlafrćđinámiđ er fyrst og fremst gríđarlega fjölbreytt og skemmtilegt. Ţađ er lögđ rík áhersla á sjálfstćđ vinnubrögđ og frumkvćđi. “

Ćgir Ţór Eysteinsson fréttamađur á RÚV
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf