Námsaðstaða, rannsóknaaðstaða og tækjabúnaður
Nám
í auðlindafræðum er að stórum hluta til raunvísindatengt og því er aðstaða til rannsókna og verklegs náms afar
mikilvægur þáttur í umhverfi jafnt nemenda sem kennara.Með tilkomu Borga, nýja rannsóknar- og nýsköpunarhúss Háskólans, sem tekið var í notkun í október 2004, batnaði öll aðstaða til rannsókna og verklegrar kennslu til muna. Inn í rannsóknarhúsið, sem er 5,500 m2 að flatarmáli, fluttu einnig margar samstarfsstofnanir, m.a. útibú Matís og Hafrannsóknastofnunar (Hafró), en auk þess Akureyrarútibú Náttúrufræðistofnunar, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri (RHA), Umhverfisstofnun og fleiri stofnanir. Samstarf þessara stofnana og annarra í rannsóknarhúsinu myndar nú sterkan þekkingargrunn (vísindagarð), og býður upp á góða aðstöðu til kennslu og rannsókna á öllum sviðum auðlindamála.
Stúdentagarðar
Félagsstofnun stúdenta á Akureyri er sjálfseignarstofnun sem Háskólinn
á Akureyri, skráðir stúdentar og Akureyrarbær eiga aðild að. Þessir aðilar skipa einnig fulltrúa í stjórn
Félagsstofnunar. Félagsstofnun rekur nú stúdentagarða víða á Akureyri. Sjá nánar á www.festaha.is.
Bókakostur
Bókasafn Háskólans er í nýju og rúmgóðu húsnæði á
Sólborg. Það er rannsókna- og sérfræðibókasafn sem sníður kaup sín á efni að mestu leyti eftir þörfum
háskóladeildanna fjögurra. Bókakostur er orðinn mjög góður og byggist á sérhæfðum bókum, tímaritum, myndböndum
og ekki síst rafrænum tímaritum og gagnasöfnum . Hægt er
að nálgast mikið af sérhæfðum tímaritum frítt á netinu og er mikil áhersla á að nota vefinn í verkefnavinnu í
sjávarútvegsfræðum.
Rannsóknastofur
Á Borgum er að finna fullkomnar og vel tækjum búnar rannsóknastofur og sérútbúnar kennslustofur til verklegs náms
á hinum ýmsu sviðum auðlindafræðanna, svo sem lífvísindum, efnafræði, eðlisfræði og jarðvísindum. Einnig er
rannsóknaraðstaða við samstarfsstofnanir auðlindadeildar í Borgum, m.a. Matís, Akureyrarútibú Hafrannsóknastofnunar og
Akureyrarútibú Náttúrufræðistofnunar Íslands.


