Meistaranámsverkefni 2010
Stjórnun á veiðum, vinnsla og markaðir fyrir ígulker
Nemandi: Halldór Pétur Ásbjörnsson, leiðbeinandi: Hreiðar Þór ValtýssonMarkmið verkefnisins er að rannsaka ígulker (skollakopp) í Eyjafirði með tilliti til vistfræðilega og efnahagslega sjálfbærra veiða. Rannsakað verður mögulegur veiðistofn á hverju svæði ásamt hrognafyllingu. Dregnar verða saman mismunandi reglur og veiðiaðferðir sem gilda hjá löndum sem stunda ígulkeraveiðar að einhverju marki. Ásamt því verða vinnsluaðferðir og markaðsstaða í heiminum könnuð. Annað markmið er að reyna festa hendur á hversu mörg hugsanleg störf og tekjur atvinnugreinin gæti gefið af sér í framtíðinni.
Verkefnið er unnið í samstarfi við Erlend Guðmundsson atvinnukafara á Akureyri og Daníel Guðmundsson.
Sumarverkefni nemenda 2010
Sæbjúgnaveiðar á Íslandi
Nemandi: Eyrún Elva Marinósdóttir, leiðbeinandi: Hörður SævaldssonMarkmið verkefnisins er að gefa heilsteypta mynd af veiði á sæbjúgum á Íslandi í dag, veiðiþoli, þróun veiða, vinnslu og markaða hingað til og mat á framtíðarmöguleikum. Verkefnið er unnið í samstarfi við Nýsköpunarsjóð námsmanna.
Veiðar, vinnsla og markaðir fyrir krabba við ísland
Nemandi: Halldór Pétur Ásbjörnsson, leiðbeinandi: Hreiðar Þór Valtýsson.Markmið verkefnisins er að gefa yfirlit yfir tækifæri tengd vinnslu á krabba hér á landi og markaðssetningu/mörkuðum fyrir afurðir erlendis. Krabbategundir sem rannsóknin nær yfir eru trjónukrabbi, bogkrabbi, grjótkrabbi, gaddakrabbi og tröllakrabbi. Annað markmið þessa verkefnis er að meta hugsanlega verðmætasköpun við krabbaveiðar og kanna hvaða möguleikar verðaá nýtingu krabbans ef útbreiðsla tegundanna eykst. Hagnýtingin er að fyrirtæki geta nýtt sér þekkinguna til að geta aukið veiðar og vinnslu með minni tilkostnaði og hámarkað hagnað með tilliti til markaða. Verkefnið er unnið í samstarfi við Nýsköpunarsjóð námsmanna.
Brynstirtla, veiðar, vinnsluaðferðir og markaðir
Nemandi: Jón Benedikt Gíslason, leiðbeinandi: Steingrímur Jónsson.Markmið verkefnisins er að gera grein fyrir breyttu útbreiðslumynstri og veiðum brynstirtlu sem mun varpa ljósi á það hvort brynstirtla verður næsta nytjategund Íslendinga. Annað markmið rannsóknarinnar er að skapa þekkingargrunn á vinnsluaðferðum, mörkuðum og afurðarverði brynstirtlunnar sem er grundvöllur fyrir nýtingu tegundarinnar ef hún gengur inn á Íslandsmið. Helstu samstarfsaðilar eru Nýsköpunarsjóður námsmanna, Steingrímur Jónsson haffræðingur ásamt fyrirtækjum sem veiða og selja brynstirtlu erlendis.
Er raunhæft að koma með allar aukaafurðir frystiskipa að landi?
Nemandi: Bjarni Eiríksson, leiðbeinandi: Hreiðar Þór Valtýsson.Markmið verkefnisins er að stuðla að hámörkun í verðmætasköpun innan íslensks sjávarútvegs. Hagnýtt gildi verkefnisins felst í mati á hvort mögulegt er að auka verðmætasköpun íslenska frystiskipaflotans með arðbærum hætti. Leitað verður fyrirmynda hjá þeim frystiskipum sem leggja áherslu á nýtingu aukaafurða og greindir verða þættir sem liggja að baki góðri nýtingu. Lagt verður mat á hindranir við frekari nýtingu þeirra og settar verða fram tillögur um aðlögun starfshátta sem stuðlað geta að aukinni nýtingu aukaafurða. Helstu samstarfsaðilar eru Nýsköpunarsjóður námsmanna og Matís.


