Verkefni starfsmanna deildarinnar og samstarfsstofnana eru fjölmörg og misstór. Hér að neðan eru
einungis tínd til helstu verkefnin sem starfsmenn deildarinnar vinna að núna eða hafa tiltölulega nýlega lokið við.
Stærsta einstaka verkefnið sem tengist sjávarútvegi er ef til vill Gagnaveitan um sjávarútveg, (fisheries.is) verkefni þetta var unnið fyrir Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og var tilgangurinn að hafa þar sem víðtækastar upplýsingar á ensku varðandi vistfræði hafsins og íslenskan sjávarútveg.
Nemendur deildarinnar ljúka námi sínu með einnar annar verkefni, oftast í nánu samstarfi við fyrirtæki. Yfirlit yfir þessi verkefni er að finna hérna og mörg þessara verkefna má einnig sjá í heild sinni í Skemmunni.


