Við sjávarútvegsbraut Háskólans starfar hæfur og samrýndur hópur fólks. Á þessari síðu er að finna nöfn starfsfólks og kennara, heimasíður þeirra, netföng og símanúmer innan Háskólans. Formlegir starfsmenn Sjávarútvegsmiðstöðvarinnar eru tveir, báðir í hlutastarfi við miðstöðina. Miðstöðin hefur eitt stöðugildi sem er aukið með rannsóknarstyrkjum. Aðrir starfsmenn eru í hlutastarfi annaðhvort í M.Sc. námi eða verkefnaráðnir til lengri eða skemmri tíma.
![]() |
|
![]() |
|
||
|
Hreiðar Þór Valtýsson er forstöðumaður miðstöðvarinnar í hlutastarfi ásamt því að gegna stöðu lektors við Sjávarútvegsdeild. Hann er sjávarlíffræðingur frá HÍ og með M.Sc. gráðu í fiskifræði frá University of British Columbia. Hreiðar starfaði lengi vel sem útibússtjóri Hafrannsóknastofnunarinnar á Akureyri og er jafnframt lektor við Auðlindadeild HA og hefur starfað við kennslu og rannsóknir tengdar sjávarútvegsfræðum síðan 1998. Fyrir þann tíma var hann í ýmsum störfum við sjávarútveg bæði til sjós og lands. |
Jón Ingi Björnsson er sérfræðingur við miðstöðina í hlutastarfi ásamt því að sinna stundakennslu við sjávarútvegsbraut HA. Hann er með B.Sc. gráðu í sjávarútvegsfræði frá HA. Bakgrunnur Jóns Inga nær til margra þátta atvinnulífsins og hefur hann þ.a.m. unnið á vélaverkstæði, vélaleigu og í öðrum tilfallandi störfum. Jón Ingi hefur verið viðloðandi sjávarútveg frá unga aldri, þ.á.m. háseti, línubeitningarmaður, aðstoðað við rekstur útgerðar o.fl. |
||||
![]() |
|
![]() |
|
||
|
Bjarni Eiríksson er með B.Sc. gráðu í sjávarútvegsfræðum frá HA og er í meistaranámi við Viðskipta- og
raunvísindasvið HA. Hann hefur starfað við Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna (UNU-FTP) síðan 2006.
Að auki hefur Bjarni unnið ýmis verkefni og hlutastörf á vegum HA, RHA og Sjávarútvegsmiðstöðvar HA. Bjarni er sveitastrákur að
upplagi og er alinn upp við garðyrkju. Hann hefur ferðast víða og hefur eytt nokkrum árum erlendis við nám og vinnu. Bjarni er eini Íslendingurinn og
einn af tveimur Norðurlandabúum sem vitað er um að hafi siglt niður Mississippi ána frá upptökum niður til New Orleans. |
Anna Guðrún Árnadóttir er með B.Sc. gráðu í sjávarúvegsfræðum við HA og hefur nýhafið störf hjá
Sjávarútvegsmiðstöðinni. |
||||
![]() |
|
||||
|
Hörður Sævaldsson er sérfræðingur við miðstöðina í hlutastarfi, sinnir stundakennslu við Sjávarútvegsdeild. Hann er sjávarútvegsfræðingur frá HA og með M.Sc gráðu í fjármálum og bankastarfsemi frá University of Stirling. Hörður hefur unnið við sjávarútveg frá blautu barnsbeini, þ.á.m. sem skipstjórnamaður og við markaðssetningu á fiskileitartækjum. |
|
|
|||
Útskrifaðir starfsmenn |
|||||
![]() |
|
![]() |
|
||
|
Halldór Pétur Ásbjörnsson er með B.Sc. gráðu í sjávarútvegsfræðum og M.SC. gráðu í
auðlindafræðum frá HA. Hann hefur einnig lokið fiskvinnsluskólanum á Dalvík og fiskeldisfræðum frá Hólum í Hjaltadal.
Halldór starfar nú hjá Fiskistofu í Reykjavík. |
Jón Benedikt Gíslason er með B.Sc. gráðu í sjávarútvegsfræðum. Jón hefur unnið við rannsóknir og mælingar hjá Hafró og Sjávarútvegsmiðstöðinni frá 2008. Jón er einnig fyrirliði Íslandsmeistara SA í íshokkí. Jón er nú fluttur til Danmerkur. |
|
|||









