Engin ein skilgreining er til um hvað sjávarútvegur er. Í enskumælandi löndum er orðið fisheries oft notað yfir
sjávarútveg og sjávarútvegsfræðingar kalla sig gjarnan fisheries scientists á ensku. Hinsvegar má líta á þetta sem of
þrönga skilgreiningu. Sjávarútvegurinn er miklu meira en bara fiskveiðarnar. Hann er í raun allt ferlið frá rannsóknum á umhverfi
auðlindarinnar, þ.e. hafinu og allt þar til afurðin er sett á disk neytenda á innlendum eða alþjóðlegum mörkuðum. Aðalmarkmið
íslensks sjávarútvegs er nefnilega ekki að veiða fisk, heldur selja. Sjávarútvegur er því mjög fjölbreyttur og rúmar mörg
sérfræðisvið. Námið í sjávarútvegsfræðum er þar af leiðandi mjög vítt og krefst þess
að nemandinn kunni skil á grunnhugtökum á jafn víðum sviðum og raunvísindum, viðskiptum sem og þáttum sem snerta
sjávarútveginn beint. Námið er mjög þverfaglegt og nokkuð sérstakt í íslenskri námsflóru vegna þess.

Útskrifaður sjávarútvegsfræðingur á að þekkja helstu atriði í öllu sjávarútvegsferlinu, þó þriggja ára nám geti aldrei boðið upp á að djúpt sé kafað á neinum ákveðnum stað. Áherslan er frekar á heildarsýnina og á það að gera sjávarútvegsfræðinginum kleift að komast að í stjórnunarstöður hvar sem er í sjávarútvegsferlinu og þá að kunna að leita sér aðstoðar annarra sérfræðinga þegar það þarf. Reynslan hefur einnig sýnt að námið nýtist víðar en í sjávarútveginum því allt að helmingur útskrifaðra sjávarútvegsfræðinga starfa nú utan hans.
Frá árinu 1990 hefur bakkalárnám í sjávarútvegsfræðum verið í boði við
Háskólann á Akureyri (HA). Fyrir þann tíma sóttu Íslendingar bakkalár- og meistaranám í
sjávarútvegsfræðum til Tromsø í Noregi (NFH), kennsla í þessum fræðum hófst þar árið 1972 og innrituðust
fyrstu íslensku nemendurnir árið 1975. Háskóli Íslands bauð einnig upp á meistaranám í
sjávarútvegsfræðum árin 1995-2005 (HÍ-M.sc.). Frá árinu 1990 hafa 144 útskrifast með gráðu í
sjávarútvegsfræðum frá HA, 40 Íslendingar frá Tromsø og 19 frá HÍ, í heildina eru því 203 einstaklingar á
Íslandi sem bera gráðuna sjávarútvegsfræðingur.


