Sjávarútvegsmiðstöðin var formlega opnuð fimmtudaginn 16. apríl 2009, þegar samningur milli Háskólans á Akureyri og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins var undirritaður. Samninginn undirrituðu Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Þorsteinn Gunnarsson, fyrrverandi rektor Háskólans á Akureyri.
Sjávarútvegsmiðstöðinni við Háskólann á Akureyri er ætlað er að styðja við þá stefnu Háskólans á Akureyri [HA] að efla tengsl atvinnulífs og skóla; styrkja gagnkvæm tengsl og rannsóknir svo og að afla og miðla þekkingar innan sjávarútvegs.
Markmið miðstöðvarinnar er ennfremur að styrkja forystuhlutverk HA á sviði menntunar og rannsókna í sjávarútvegi með eflingu hagnýtra rannsókna, verkefna og kennslu tengdri sjávarútvegi. Í því felst m.a. að efla samstarf HA við atvinnugreinina, að stuðla að bættri ímynd sjávarútvegs meðal almennings og eflingu náms í sjávarútvegsfræðum við HA. Sjávarútvegsmiðstöðin mun leitast við að ná markmiðum sínum með því að:
- Afla og miðla upplýsingum til fyrirtækja og samstarfsaðila.
- Annast gerð rannsóknaráætlana og framkvæmd þeirra.
- Stuðla að nýsköpun og styðja við frumkvöðlastarfsemi í sjávarútvegi.
- Stuðla að samvinnu við innlendar og erlendar rannsóknastofnanir, svo og aðra aðila, um málefni er varða sjávarútveg.
- Standa fyrir ráðstefnum, umræðufundum, námskeiðum, fyrirlestrum og annarri fræðslustarfsemi.
- Tengja nemendur HA við verkefni í fyrirtækjum.
- Annast þjónusturannsóknir í eigin nafni.
- Safna upplýsingum um sjávarútveg í gagnagrunn sem nýtist í rannsóknum.
- Standa fyrir útgáfu rita og söfnun bóka, tímarita og annars efnis um sjávarútveg.



