Á ársfundi Háskólans á Akureyri árið 2007 skrifaði skólinn undir samstarfssamning annars vegar við Landssamband íslenskra útvegsmanna og hins vegar Menntamálaráðuneytið um samstarf á sviði menntunar og rannsókna í sjávarútvegi. Meginmarkmið samningsins var að styrkja forystuhlutverk HA á sviði menntunar og rannsókna í sjávarútvegi. Lögð var áhersla á að fjölga nemendum sem leggja stund á nám í sjávarútvegsfræði m.a. með því að endurskoða samsetningu námsins og styrkja ímynd þess. Sérstaklega var horft til viðhorfs og þarfa atvinnugreinarinnar. Þá var framlag og áhrif brautskráðra sjávarútvegsfræðinga sem starfa í greininni metið.
Til að ná markmiðum lagði LÍÚ fram samtals kr. 45.000.000 á þremur árum. Menntamálaráðuneyti lagði fram jafnhá viðbótarframlög til HA í sama tilgangi. Skipuð var verkefnisstjórn til að hafa umsjón með framgangi samningsins.
Lokaskýrslu verkefnisins má vænta í lok maí 2011.
Háskólinn á Akureyri skrifaði í lok árs 2007 undir samning við Einar Kristin Guðfinnsson þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna gagnaveitu um haf og sjávarútveg. Samkvæmt samningnum tók Háskólinn á Akureyri að sér að ritstýra verkefni um gerð gagnaveitu á veraldarvefnum. Markmið gagnaveitunnar var að gera aðgengilegar á einum stað upplýsingar um vistkerfi og náttúru hafsins við Ísland, sjálfbæra nýtingu auðlinda þess, efnainnihald og heilnæmi sjávarfangs sem og hagrænar upplýsingar um sjávarútveg Íslands og tengsl þeirra við þjóðhagsstærðir. Gagnaveitan var gerð aðgengileg við hátíðlega athöfn á íslensku Sjávarútvegssýningunni haustið 2008 og má sjá hana á www.fisheries.is. Stefnt er að því að veitan verði yfirfærð á íslensku en í augnablikinu er hún eingöngu á ensku.
Segja má að verkefnið um eflingu náms í sjávarútvegsfræðum ásamt Gagnaveitu um íslenskan sjávarútveg hafi verið upphafið á stofnun Sjávarútvegsmiðstöðvarinnar vorið 2009.
Stytting
ræktunartíma kræklings
Markmið verkefnisins er að þróa aðferð við áframræktun kræklingsins sem skilar uppskeru fyrr en hefðbundin ræktunaraðferð. Þá er borinn saman vöxtur áframræktaðra smáskelja á ræktunarsvæðum í Eyjafirði, Breiðafirði og Hvalfirði . Önnur markmið er að meta stofnstærð og nýliðunargetu á tilraunaveiðisvæðum smáskelja í Hvalfirði og upptöku kadmíums í kræklingi eftir flutning og í áframræktun.
Sjávarútvegsmiðstöðin sér um mælingar sýna og úrvinnslu gagna í þessu verkefni. Auk miðstöðvarinnar koma að verkefninu Skelrækt (hagsmunasamtök skelræktenda), Matís, Hafró, RHA, Atlantsskel, Norðurskel og Nesskel.
Verkefnið hófst vorið 2009 og áætluð verklok eru í september 2010.
Verkefni í samstarfi við Rannsóknarstofnun HA
2010
Áhrif innköllunar aflaheimilda á stöðu íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja.
Höfundar: Stefán B. Gunnlaugsson, Ögmundur Knútsson og Jón Þorvaldur Heiðarsson - skýrslan
Framhaldsnemar og
sjávarútvegsnám. - skýrslan
Höfundar: Hjördís Sigursteinsdóttir og Sigrún Sif Jóelsdóttir
Sjávarútvegsfræðingar sem starfsmenn.
Höfundur: Hjördís Sigursteinsdóttir
Framhaldsnemar og
sjávarútvegsnám. - skýrslan
Höfundar: Hjördís Sigursteinsdóttir og Sigrún Sif Jóelsdóttir
2008
Verum klár - borðum fisk,
fræðsluefni um hollustu sjávarfangs. - skýrslan
Höfundur: Þórunn Guðlaugsdóttir
Eldra
Stoðgreinar útgerðar og
fiskvinnslu
Höfundur: Hjördís Sigursteinsdóttir.


