Nemendur
Félag nemenda í
Auðlindafræðum við HA heitir Stafnbúi og er vefsíðaþeirra inni á vef Félags stúdenta við HA. Nemendurnir halda einnig
úti vefsíðu á Fésbók.
Útskrifaðir sjávarútvegsfræðingar
Forkröfur
Almennt inntökuskilyrði er stúdentspróf, en heimilt er að leyfa skrásetningu einstaklinga er lokið hafa öðrum prófum sem deildin telur að veiti fullnægjandi undirbúning og hafa náð 25 ára aldri. Nemendur skulu þó hið minnsta hafa klárað 70 einingar úr framhaldsskóla. Gengið er út frá góðri þekkingu í íslensku og færni í að tjá sig í töluðu og rituðu máli ásamt kunnáttu í tölvunotkun. Traust undirstaða í stærðfræði og ensku er mikilvæg.
Varðandi forkröfur fyrir sjávarútvegsfræðin ber að taka fram að þar er almennt litið á að skipsstjórnarpróf (3. stig) sé ígildi stúdentsprófs, enda er góð reynsla af nemendum með slíka menntun í deildinni.
Nemendum sem tekið hafa áfanga í öðru háskólanámi er einnig bent á að oft er hægt að fá það nám viðurkennt og er þá hægt að sækja um að fá sambærilega áfanga í sjávarútvegsfræðináminu metna.
Fjarnám
Ekki eiga allir jafn
auðvelt með að hefja nám fjarri heimsslóðum. Háskólinn á Akureyri hefur því lagt mikla áherslu á fjarnám og er
því hlutfallslega mikill hluti nemenda háskólans í þess konar námi.
Boðið er upp á fjarnám á tilteknum fræðasviðum auðlindafræða eftir því sem fjármagn fæst til hverju sinni og
næg þátttaka er tryggð á hverri námsbraut og í hverju námskeiði. Nemendum er þó skylt að mæta í staðbundnar
lotur samkvæmt stundaskrá hverju sinni, nema annað sé tekið fram í upphafi annar. Að jafnaði eru þetta tvær 2 vikna lotur á hvorri
önn. Veturinn 2010/11 verða þessar fjarnemavikur frá 27. sept. - 1. okt, 25. okt. - 29. okt, 31. jan. - 4. feb., og 28. feb. - 4. mars. Dagskrá þessara
fjarnemavikna er að öllu jöfnu stífust fyrsta árið, því þá eru margir grunnáfangar þar sem margra verklegra æfinga er
krafist.
Nemendur bera allan kostnað við ferðalög sem tengjast staðbundnum lotum og bera ábyrgð á skipulagi eigin ferðalags.
Við miðlun námsins verður mest stuðst við Moodle, heimasíður kennara og upptökur úr dagskóla. (sem er hægt að nálgast á Moodle) Í þeim námskeiðum sem eru samkennd með viðskiptafræði fer kennsla fram í fjarfundabúnaði. Kennsla í verklegum þáttum námskeiða fer fram í lotum og er þá nauðsynlegt að nemendur komi til Akureyrar.
Nánar um fjarnám á vefsíðu Viðskipta- og raunvísindadeildar HA.
Kennsluvefir
Við almenna kennslu í Viðskipta- og raunvísindadeild HA er Moodle vefurinn notaður (áður var notast við Blackboard). Þetta er sérhæfður kennsluvefur sem notaður er í fjölmörgum háskólum víða um heim. Þar eru upplýsingar um kennsluáfanga, kennsluglærur úr einstökum tímum og upptökur á fyrirlestrum fyrir fjarnema. Vefurinn býður einnig upp á fjölmarga aðra möguleika.
Vef-Stefanía er einnig mikilvægur vefur í námi nemenda (og reyndar við vinnu kennara líka), þar eru upplýsingar um námsframvindu, einkunnir, stundaskrá og jafnvel hægt að sjá upplýsingar um rétt dagsins í mötuneytinu.
Háskólinn býður upp á ýmsa aðra þjónustu í gegnum vefinn, nemendur fá auðvitað sitt eigið tölvupóstfang við skólann og geta nálgast allan sinn póst í gegnum vef-pósthúsið. Hluta af námsefninu er svo hægt að nálgast í Hlöðunni. Í Skemmunni er hægt að nálgast fjölmargar lokaritgerðir nemenda.
Námseiningar (ECTS) og vinnuálag
Öll námskeið við Viðskipta- og raunvísindasvið HA eru 6 ECTS einingar og á hverri önn eru 5
námskeið. Þriggja ára B.Sc. nám er því að lágmarki 180 ECTS einingar.
Til útskýringar á einingakerfinu þá eru svokallaðar ECTS (European credit transfer system) einingar samkvæmt
stöðluðu evrópsku kerfi og er þá miðað við að 60 ECTS einingar séu um það bil ársnám. Einingarnar eru m.a.
staðlaðar milli háskóla og því er auðveldað að fá þær metnar á milli háskóla.
Ljóst er að allir háskólar á Íslandi eru að taka upp þetta kerfi og mun gamla kerfið þá verða aflagt. Til samanburðar þá er gamla kerfið nákvæmlega hálfdrættingur á við ECTS kerfið og eru því tvær ECTS einingar það sama og ein eining þar.
Gróflega hefur verið metið að þriggja daga vinna nemenda sé á bak við hverja ECTS einingu, og þá er átt við 8 stunda vinnudag. Innifalið í þessari vinnu eru ekki bara fyrirlestrar og verklegir tímar heldur einnig sá tími sem fer í að gera skýrslur og lesa kennsluefnið heima. Þessi tala er þó langt frá því að vera heilög, heldur á við um einhverskonar meðalnemanda í meðalkáfanga í meðalárferði og jafnframt er vonlaust að hver einasti áfangi falli nákvæmlega að þessum mörkum. Sumir nemendur þurfa lengri tíma til að komast í gegnum einn áfanga en styttri í annan. Þetta er því aðeins viðmiðun og jafnframt sett fram til að nemendur geri sér grein fyrir því að vinnuálag í fullu námi er sambærilegt við vinnuálag í fullri vinnu.
Að loknum hverjum áfanga er nemendum þó gert kleift að tjá skoðun sína á áfanganum. Kennurum er skylt að taka tillit til þess við nánari þróun á áfanganum ef almenn samstaða er meðal nemenda um að vinnuálag sé of lítið eða of mikið.


