Háskólinn á Akureyri

Bókvitiđ verđur í askana látiđ ... en ekki verknámiđ  Fræðslufundur verður haldinn fimmtudaginn 5. maí  kl. 16:30.

Bókvitiđ verđur í askana látiđ ... en ekki verknámiđ

 Fræðslufundur verður haldinn fimmtudaginn 5. maí  kl. 16:30. Þar ætlar Hildur Betty Kristjánsdóttir, náms- og starfsráðgjafi, verkefnastjóri hjá SÍMEY að fjalla um stöðu list- og verkgreina. Fundurinn er haldinn í húsnæði Háskólans á Akureyri, Sólborg við Norðurslóð í stofu L101 og er öllum opinn.

Umræða um stöðu list- og verkgreina hefur farið fram á Íslandi um alllangt skeið. Hún hefur einkennst af því hvernig auka megi vægi þeirra innan skólakerfisins. Fram kemur í lögum um grunnskóla nr. 91/2008 að ráðherra lætur grunnskólum í té aðalnámskrá og í 24. gr. er lögð áhersla á jafnvægi milli bók- og verklegs náms.

Markmið rannsóknarinnar var að öðlast skilning á tengslum bók-, list- og verknáms á unglingastigi grunnskóla með því að kanna viðhorf viðmælenda sem hafa faglega þekkingu, reynslu og skoðanir á þessu sviði. Eftirfarandi spurning lá til grundvallar; Hvaða möguleikar eru á að viðhafa val á milli bók-, list- og verknáms á unglingastigi?

Í kynningunni verður gerð grein fyrir fræðilegum þáttum sem lagðar voru til grundavallar í rannsóknninni og niðurstöður rannsóknarinnar kynntar.



Blar Gulur Hvitur
A A A
Barbara Helgadóttir

„Háskólinn á Akureyri er mjög góđur skóli. Ég er sérstaklega ánćgđ međ símatiđ sem er í sálfrćđinni.“

Barbara Helgadóttir nemandi í sálfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf