Háskólinn á Akureyri

Ţetta snýst allt um viđhorf – stjórnun og skipulag kennslu barna međ sérţarfir á yngsta stigi grunnskólans Fræðslufundur verður haldinn

Ţetta snýst allt um viđhorf – stjórnun og skipulag kennslu barna međ sérţarfir á yngsta stigi grunnskólans

Fræðslufundur verður haldinn fimmtudaginn 14. október kl. 16:30. Þar flytur Anna Kolbrún Árnadóttir, deildarstjóri sérkennslu í Síðuskóla á Akureyri fyrirlestur um stjórnun og skipulag kennslu barna með sérþarfir á yngsta stigi grunnskólans. Fundurinn er haldinn í húsnæði Háskólans á Akureyri, Sólborg við Norðurslóð í stofu L101 og er öllum opinn.

Á Íslandi starfa grunnskólar eftir hugmyndafræðinni um skóla án aðgreiningar. Lög og reglugerðir styðja við hugmyndafræðina ásamt skólastefnum sveitarfélaga. Hugmyndafræðin um skóla án aðgreiningar gerir kröfur um að skólar og kennarar aðlagi bæði námsefni og kennsluhætti að stefnunni.
Á fundinum verður sagt frá rannsókn sem ætlað var að varpa ljósi á hvernig stjórnun og skipulagi kennslu er háttað á yngsta stigi grunnskólanna á Akureyri og að skoða hvort stjórnun og skipulag kennslunnar samræmist íslenskum lögum, alþjóðlegum reglugerðum sem Íslendingar eru aðilar að og skólastefnu Akureyrarbæjar.
Aðferðin við rannsóknina fólst í hálfopnum viðtölum sem sem tekin voru á tímabilinu nóvember 2009 til febrúar 2010. Þátttakendur í rannsókninni voru fjórir sérkennarar, fjórir umsjónarkennarar og fjórir skólastjórar.





Blar Gulur Hvitur
A A A
Bergvin Fannar Gunnarsson

„Ég valdi Háskólann á Akureyri ađ miklu leyti vegna stađsetningar skólans.“

Bergvin Fannar Gunnarsson nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf