Háskólinn á Akureyri

Monika Vinterek er prófessor við Umeå háskólann og Dalarna háskólann í

Aðalfyrirlesarar


Monika Vinterek er prófessor við Umeå háskólann og Dalarna háskólann í Svíþjóð með menntunarfræði sem sérgrein. Hún hefur lokið meistaraprófi í sögu, félagsvísindum og menntunarfræðum og árið 2001 lauk hún doktorsgráðu í heimspeki. Vinterek kenndi í 10 ár í við grunnskóla þar til hún hóf störf 1994 á háskólastigi. Monika hefur verið virk í rannsóknum, birtingum og fjölþjóðlegu samstarfi. Viðfangsefni hennar er almenn kennslufræði en helstu áhugsvið Moniku lúta að einstaklingsmiðun í kennslu, leiðum kennara til að ná árangri í starfi, hvernig standa megi að árangursríku námi og kennslu í aldursblönduðum námshópum og hvernig námsbækur og önnur námsgögn eru nýtt frá sjónarhóli notandans. Monika hefur skrifað fjölda greina og meðal bókaskrifa eru bækurnar Åldersblandade klasser: lärares föreställningar och elevers erfarenheter (2003) og Individualisering i ett skolsammanhang.

Heimasíða: http://www.svshv.umu.se/personal/vinterek_monika.html

 

Ágúst Ólason, aðstoðarskólastjóri Norðlingaskóla
Ágúst hóf störf við Norðlingaskóla í maí 2005. Útskrifaðist frá KHÍ 2005 sem yngri barna kennari. Stundar meistaranám við HÍ með áherslu á kennslufræði og skólastarf. Starfaði í Rimaskóla frá 2000-´05 sem stuðningsfulltrúi, forstöðumaður skóladagvistar og ritstjóri. Starfaði í tvo áratugi við meðferðar- og hjálparstarf fyrir vímuefnaneytendur.

Rósa Kristín Júlíusdóttir, lektor í myndlistakennslu við kennaradeild Háskólans á Akureyri.
Rósa lauk BA prófi í myndlist frá Listaakademíunni í Bologna á Ítalíu árið 1972 og meistaraprófi í menntunarfræðum með áherslu á myndlistakennslu, frá Háskólanum á Akureyri vorið 2003.  Rósa hefur starfað jöfnum höndum sem myndlistakennari og myndlistakona. Hún kenndi við Myndlistaskólann á Akureyri frá árinu 1980 til 2000 og var stundakennari við Listaháskóla Íslands í fimm ár. Rannsókna- og fræðasviðs áherslur Rósu eru á mikilvægi lista – og listsköpunar í menntun og skólastarfi. Hún hefur rannsakað hlutverk myndsköpunar í daglegu lífi barna og ungmenna. Nýlegar rannsóknir hennar beinast að  fagurfræðilegri upplifun ungra barna og að listasöfnum sem vettvangi menntunar.  Nú um stundir er hún hluti af rannsóknarteymi í tveim rannsóknarverkefnum; Starfshættir list- og verkgreina í  grunnskólum og norrænu- og baltnesku verkefni CAVIC; samtímalist og sjónmenning í menntun.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Jóhanna Jónsdóttir

„Hjúkrunarfræði við HA er fjölbreytt og líflegt nám.“

Jóhanna Jónsdóttir nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf