Háskólinn á Akureyri

Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri stendur fyrir fræðslufundum á

Fræðslufundir

img_3266_400_01Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri stendur fyrir fræðslufundum á skólaárinu 2011-2012. Áhersla er lögð á að kynna nýjar rannsóknir á sviði uppeldis- og menntamála á fundunum eða farsælt þróunarstarf í skólum. Fundirnir eru klukkutíma langir, hefjast kl. 15:20 í húsnæði Háskólans á Akureyri, Sólborg við Norðurslóð og eru öllum opnir. Sérstaklega eru kennarar, skólastjórar, foreldrar, háskólanemar og aðrir þeir sem áhuga hafa á skólamálum boðnir velkomnir. Form fundanna er með þeim hætti að framsögumaður talar í 40 mínútur en eftir það eru leyfðar fyrirspurnir og umræður. Þegar framsögumenn eru tveir á fræðslufundi er áætlaður tími í framsögu 10-15 mínútur og svo umræður og fyrirspurnir í kjölfarið alls 30 mínútur á erindi.

Fræðslufundir miðstöðvar skólaþróunar 2011-2012.

Fræðslufundirnir verða haldnir sem hér segir (nánari upplýsingar má fá um hvern fund með því að smella músarhnappi á viðeigandi dagsetningu):

8. september 2011 – Dagur læsis, Herdís Anna Friðfinnsdóttir
Áhrif áhugahvatar á lestrarnám nemenda í 6. bekk grunnskóla : „Ef ég les eitthvað sem mér finnst skemmtilegt eða spennandi þá langar mig að lesa meira og meira og vita meira...“

6. október 2011, Katrín Björg Ríkharðsdóttir
Þú þarft bara að sanna þig: Reynsla kvenna af námi og starfi sem telst óhefðbundið fyrir kyn þeirra - húsasmíði og tölvunarfræði.

3. nóvember 2011, Jakobína Áskelsdóttir
Aukin gæði náms í leikskóla. Góðir hlutir gerast hægt... og festast þá í sessi.
Athugið stofubreyting - fyrirlesturinn fer fram í stofu M-202.

24. nóvember 2011
Bergljót Hallgrímsdóttir „Ætti maður að spyrja að því?“
Sólveig Þórarinsdóttir Upplifun aðstoðarleikskólastjóra af starfi sínu. Viðtalsrannsókn við sex aðstoðarleikskólastjóra.

19. janúar 2012, Hrund Hlöðversdóttir
Það kemur miklu meira á vagninn. Lykilþættir breytingarstarfs.

16. febrúar 2012
Sólveig Zophoníasdóttir Rödd nemenda og hlutdeild í skólastarfi.

15. mars 2012 
Þorgerður Sigurðardóttir Árangur af þróunarstarfi. Rannsókn á tveimur þróunarverkefnum í grunnskóla.
Þór Pálsson Hvað gera skólameistarar framhaldsskóla til að halda í og styrkja gott fólk og hvernig taka þeir á erfiðustu starfsmannamálunum?

12. apríl 2012
Dóróþea Reimarsdóttir Lengi býr að fyrstu gerð: stærðfræðinám ungra barna

 

Blar Gulur Hvitur
A A A
Alma Kristín Gísladóttir

„Það kom aldrei neitt annað til greina en að fara í HA. Námið er spennandi og opnar ýmsa möguleika til framtíðar. “

Alma Kristín Gísladóttir nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf