Háskólinn á Akureyri

Fræðslufundur haldinn að Sólborg við Norðurslóð, 15. mars 2012 kl. 15:20-16:20 í

Fræðslufundur 15. mars 2012

Fræðslufundur haldinn að Sólborg við Norðurslóð, 15. mars 2012 kl. 15:20-16:20 í L-202

Þorgerður Sigurðardóttir, skólastýra Lundarskóla á Akureyri
Árangur af þróunarstarfi.
Rannsókn á tveimur þróunarverkefnum í grunnskóla.

Erindið byggir á samnefndu meistaraprófsverkefni frá HA vorið 2011. Í erindinu verður greint frá rannsókn sem gerð var á tveimur þróunarverkefnum í grunnskólum sem hófust haustið 2004.

Rannsóknarspurningin var „Hvaða árangur varð af tveimur þróunarverkefnum í grunnskólum og hvað í undirbúningi og framkvæmd þeirra skýrir hann?

Í rannsókninni kom fram að lagt var upp með áætlanir, markmið og tilgang með verkefnunum í báðum þróunarverkefnunum og töldu þeir sem stóðu að þeim að þessir þættir hefðu verið öllum sem þátt tóku ljósir. Rannsóknin leiddi í ljós að svo var ekki og þó svo að flestir þættir sem fræðin um skólaþróun telja forsendu þess að þróunar­verkefni nái fótfestu hafi verið hafðir í huga í upphafi, var margt sem truflaði ferlið. Það kom einnig fram að margt af því sem lagt var upp með náði að festast í sessi en annað ekki. Í dag fimm árum síðar eru kennarar ánægðir með það sem náði fram að ganga og telja sig hafa lært af því. Viðmælendur töluðu langflestir um að þeir teldu að betur hefði tekist til ef ætlaður hefði verið meiri tími til verkefnanna og ef ráðgjöf og eftirfylgd við þau hefði verið meiri, bæði meðan á innleiðingu stóð og eftir hana.

 

Þór Pálsson, áfangastjóri í Iðnskólanum í Hafnarfirði
Hvað gera skólameistarar framhaldsskóla til að halda í og styrkja gott fólk og hvernig taka þeir á erfiðustu starfsmannamálunum?

 

 

Blar Gulur Hvitur
A A A
Hafdís Huld Björnsdóttir

„Skiptinám mitt við University of Manitoba í Winnipeg veitti mér ómetanlega reynslu og víkkaði sjóndeildarhringinn til muna. “

Hafdís Huld Björnsdóttir nemandi í viðskiptafræði
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf