Fræðslufundur haldinn að Sólborg við Norðurslóð, 16. febrúar 2012 kl. 15:20-16:20 í L-202
Sólveig Zophoníasdóttir, sérfræðingur hjá miðstöð skólaþróunar HA
Rödd nemenda og hlutdeild í skólastarfi
Á fræðslufundinum segir Sólveig
Zophoníasdóttir frá meistaraprófsverkefni sínu sem fólst í gerð námskrár sem kallar eftir rödd nemenda og hlutdeild í
skólastarfi. Leitað var svara við rannsóknarspurningunni: Hvað einkennir námskrá sem laðar fram rödd nemenda? Verkefnið hvílir á
grunni rannsókna, fræða og hugmynda um rödd nemenda og er ætlað að hvetja einstaklinga innan námssamfélagsins, ekki síst börn og
ungmenni, til virkrar þátttöku í öllu skólastarfi. Verkefnið hefur siðferðilega skírskotun og á rætur sínar að rekja
til jafnréttis-, mannréttinda- og lýðræðissjónarmiða og þess skilnings að menntun verði haldbærari og farsælli ef rödd
nemenda og nærvera er virk. Vaxandi umræða er um gildi þess fyrir samfélagið að einstaklingar eigi kost á að láta sjónarmið
sín í ljós varðandi málefni sem þá snerta. Þessi hugsun hefur einnig færst inn í skólanna með aukinni
lýðræðisvitund og breyttum skilningi á tilveru barna og ungmenna. Fyrir virkri aðkomu nemenda að málum sem snerta hagsmuni þeirra eru lagaleg,
siðferðileg og hagnýt rök. Í erindinu er sjónum beint að kjarna skólastarfs, það að menntast, og með hvaða hætti rödd
nemenda getur lagt námi og kennslu lið, aukið gildi menntunar fyrir einstakling og samfélag.


