Háskólinn á Akureyri

„Læsi snýst ekki einungis um lestur og ritun; læsi snýst um virðingu, tækifæri og

Kynning

Læsi snýst ekki einungis um lestur og ritun; læsi snýst um virðingu, tækifæri og þroska.“[1]  

Þann 11. september efnir Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri til ráðstefnu um læsi í tengslum við alþjóðadag læsis 8. september og tekur þannig undir kall Sameinuðu þjóðanna um stuðning við að efla læsi.

Aðalfyrirlesarar  á ráðstefnunni verða:
Helen Wolstencroft sjálfstætt starfandi ráðgjafi í Englandi
Jenný Gunnbjörnsdóttir sérfræðingur, Miðstöð skólaþróunar HA
Guðmundur Engilbertsson sérfræðingur, Miðstöð skólaþróunar HA

Auk aðalerinda eiga ráðstefnugestir kost á að taka þátt í allt að þremur  af 22 málstofum. Efni málstofa er fjölbreytt og ættu kennarar á öllum skólastigum að geta fundið efni sem höfðar til þeirra 

Á undanförnum áratug hefur Háskólinn á Akureyri lagt lóð á vogarskál læsis. Með stofnun Skólaþróunarsviðs fyrri 10 árum, nú Miðstöðvar skólaþróunar, skapaðist vettvangur fyrir þróunarstarf um læsi af margvíslegum toga í samstarfi við grunnskóla. Þau helstu eru:

Læsi til framtíðar
Byrjendalæsi
Orð af orði
Fágæti og furðuverk
Leikskólalæsi
Orðarún – lesskilningspróf fyrir 3. – 8. bekk
Lesmál fyrir 2. og 3. bekk
Skimunarprófið LÆSI, úttekt fyrir menntamálaráðuneytið
Upplestrarkeppnin, úttekt fyrir menntamálaráðuneytið
8. september, starfshópur um mótun lestrarhefða í samfélaginu í tengslum við alþjóðadag læsis
Ráðstefnur um læsi 2005,  2008 og 2010
Námsstefna um Byrjendalæsi  2010.

Loks má nefna stofnun námsbrautar til meistaragráðu í lestrarfræðum árið 2008 en sérfræðingar hjá Miðstöð skólaþróunar komu að mótun þessa náms með kennaradeild og hafa kennt í náminu.

[1](Ban Ki-moon. 24. ágúst 2009. Secretary-General SG/SM/12423, OBV/805. Slóð sótt 20. maí 2010 frá:  http://www.un.org/News/Press/docs/2009/sgsm12423.doc.htm )

 

Blar Gulur Hvitur
A A A
Steinunn Fjóla Birgisdóttir

„Ég er mjög ánćgđ međ veru mína í Háskólanum á Akureyri, ţađ er góđur andi í skólanum og félagslífiđ frábćrt.“

Steinunn Fjóla Birgisdóttir nemandi í iđjuţjálfun
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf