Byrjendalæsi - Valkostur í kennslu læsis
Byrjendalæsihefur verið í þróun á vegum Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri í samvinnu við skóla víðs vegar um landið síðastliðin fimm ár undir forystu Rósu Eggertsdóttur en auk Rósu starfa Jenný Gunnbjörnsdóttir og Þóra Rósa Geirsdóttir sem ráðgjafar við innleiðslu aðferðarinnar. Í vetur starfa um 30 skólar eftir aðferðum Byrjendalæsis.
Byrjendalæsi er samvirk kennsluaðferð ætluð til lestrarkennslu barna 1. og 2. bekk en aðferðin hefur einnig verið notuð með eldri nemendum. Við samsetningu Byrjendalæsis var aðallega stuðst við kenningar Gudschinsky, Frost, Rumelhart, Solity og Leimar. Ennfremur var sótt til ýmissa annarra fræðimanna um læsi og til NRP2000 rannsóknarinnar þar sem kemur fram mikilvægi þess að kennsluaðferðir í læsi feli í sér nálgun sem nái til allra þátta móðurmálsins. Þannig er vinna með tal, hlustun, lestur og ritun felld í eina heild undir hatti læsis. Ennfremur eru sértækir þættir móðurmálsins, svo sem hljóðvitund, réttritun, skrift, orðaforði, setningabygging og málfræði tengd inn í ferlið.
Meginmarkmið Byrjendalæsis er að börn nái góðum árangri í læsi sem allra fyrst á skólagöngu sinni. Þegar börn hefja nám í 1. bekk eru þau misjafnlega á vegi stödd. Sum þekkja stafi, önnur eru farin að lesa og svo er hópur sem þarf að læra alla stafina og hvernig á að vinna með þá. Byrjendalæsi gerir ráð fyrir því að hægt sé að kenna börnum sem hafa ólíka færni í lestri hlið við hlið og því er lögð áhersla á hópvinnu um leið og einstaklingsþörfum er mætt.
Vinnubrögð Byrjendalæsis eru um margt frábrugðið þeim sem kennarar hafa vanist. Það er mikilvægt að fyrstu tvö árin sem þeir kenna eftir aðferðinni fái þeir öflugan stuðning. Skólaþróunarsvið hefur sett fram þróunarlíkan og framkvæmdaáætlun sem lýsir stuðningi og endurmenntun kennara. Ráðgjafar eru starfsmenn Miðstöðvar Skólaþróunar. Skólar eiga kost á að fá þá inn í skólana til að vinna með kennurum. Mælt er með því að skólar ráði til sín leiðtoga sem starfar í skólanum. Leiðtoginn, sem verður ráðgjafi kennaranna, nýtur handleiðslu frá HA í tvö ár.
|
Þróunarstarf 1. ár - Kennarar |
Þróunarstarf 2. ár - Kennarar |
|
Námskeið fyrir skólabyrjun, 2 dagar |
Námskeið fyrir skólabyrjun, 1 dagur. |
|
Þróunarstarf 1. ár Leiðtogar |
Þróunarstarf 2. ár - Leiðtogar |
|
Námskeið fyrir skólabyrjun 2 dagar |
Námskeið fyrir skólabyrjun 1 dagur |


