Háskólinn á Akureyri

Að vefa serk þann er ekki bíta járn   Fjölbreyttir kennsluhættir og virkt nám   Þann 9.

Kynning

Að vefa serk þann er ekki bíta járn

 

Fjölbreyttir kennsluhættir og virkt nám

 

Þann 9. apríl 2011 verður haldin á Akureyri árleg vorráðstefna Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri. Að þessu sinni verður umfjöllunarefnið framsækni í kennslu sem leiðir að árangursríku námi með virkri þátttöku nemenda. Leitast verður við að varpa ljósi á hvaða skilyrði stuðla að slíku skólastarfi.

 

Efni ráðstefnunnar er sniðið að leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum.

Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar verða:

 

  • Monika Vinterek dósent við Háskólann í Umeå í Svíþjóð
  • Rósa Kristín Júlíusdóttir lektor við Háskólann á Akureyri
  • Ágúst Ólason aðstoðarskólastjóri Norðlingaskóla í Reykjavík

Auk aðalfyrirlestra verða málstofur þar sem kynntar verða rannsóknir og þróunarverkefni er lúta að efni ráðstefnunnar. Hver málstofa verður 40 mínútur og innan þess tíma er gert ráð fyrir umræðum.

Heiti ráðstefnunnar er eins og oft áður sótt í menntahugmyndir heimspekingsins Guðmundar Finnbogasonar en í bók hans Lýðmenntun segir:

Í fornum sögum ófu stundum mjúkar hendur vinum sínum serk þann er ekki bitu járn. Í honum mátti því vaða ósærður gegn um fylkingar. Slíkan serk á að vefa æskulýðnum úr þeim þráðum sálarlífsins sem af bestum toga eru spunnir, þá er hættulaust í bardaganum.

Guðmundur Finnbogason. (1994). Lýðmenntun. Hugleiðingar og tillögur (2. útg.). Reykjavík: Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands.

 

Blar Gulur Hvitur
A A A
Hjörtur Ágústsson

„Ég flutti frá Reykjavík til Akureyrar til ađ stunda nám í nútímafrćđi. Námiđ var lćrdómsríkt ekki síst ferđ mín til Indlands í skiptinám. “

Hjörtur Ágústsson kynningarfulltrúi hjá Evrópu unga fólksins
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf