Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri býður leikskólum og grunnskólum og öðrum þeim sem áhuga hafa upp á eintök námskeið og/eða samstarf um þróunarverkefni til lengri tíma.
Námskeið geta staðið í hálfan eða heilan dag en einnig dreifst á lengri tíma, þar sem þátttakendur myndu vinna á vettvangi á milli námskeiðsdaga.
Þróunarverkefni eru til lengri tíma og ná gjarnan yfir hálfan eða heilan vetur. Venjulega er um að ræða námskeið og ráðgjöf á vettvangi, allt eftir eðli viðfangsefnisins.
Hér fyrir neðan er yfirlit yfir efni helstu námskeið og þróunarverkefni. Berist óskir um önnur efni verður leitast við að verða við þeim.
Birna María Svanbjörnsdóttir, forstöðumaður miðstöðvar skólaþróunar gefur nánari upplýsingar um námskeið
og þróunarverkefni.
Sími 460 8579
Netfang: birnas@unak.is
Helstu námskeið og þróunarverkefni:
- Byrjendalæsi
- Einstaklingsmiðuð kennsla
- Einstaklingsnámskrárgerð fyrir nemendur með sérþarfir
- Fágæti og furðuverk
- Læsi til framtíðar, markviss efling lesskilnings
- Orð af orði
- Samstarfsáætlun skóla, fjölskyldna og samfélags
Önnur námskeið og þróunarverkefni:
- Barnið í brennidepli
- Bætt skilyrði til náms - starfsþróun í heiltæku skólastarfi
- Einelti stelpna
- Gerð endurmenntunaráætlana
- Leshömlun í almennu skólastarfi
- Orðaforði og lestur til náms
- Samvinnunám
- Söguaðferðin - The Storyline method
- Uppeldisfræðilegar skráningar í leikskólum
- Vellæsi - Lestur og ritun. 3. til 7. bekkur
Barnið í brennidepli
Námskeið
Birna Svanbjörnsdóttir sérfræðingur
Barnið í brennidepli er forvarnar- og þróunarverkefni sem Skóladeild Akureyrarbæjar og miðstöð skólaþróunar Háskólans á Akureyri hafa staðið að. Meginmarkmið verkefnisins eru að styrkja siðferðismótun og verndarþætti í nánasta umhverfi barna og móta sameiginlega sýn þeirra sem starfa að uppfræðslu og uppeldi. Unnið hefur verið með verkefnið í Síðuhverfi á Akureyri frá hausti 2004 með þátttöku Síðuskóla, Sunnubóls, Krógabóls og Síðusels, auk foreldra, félagsþjónustu, heilsugæslu, lögreglu og kirkju.
Á námskeiðinu verður verkefnið kynnt og farið yfir hvernig það þróaðist á vettvangi, hvernig gagna var aflað og umhverfið tengt verkefninu.
Námskeið - ekki mögulegt
Kynningarfundur - mögulegur
Rósa Eggertsdóttir sérfræðingur
Jenný Gunnbjörnsdóttir sérfræðingur
Byrjendalæsi er nýr valkostur í byrjendakennslu í lestri. Um er að ræða samvirka kennsluaðferð þar sem jöfnum höndum er unnið með merkingu máls og tæknilega þætti lestrarnámsins. Byrjendalæsi er byggt á kenningum lestrarfræða um áhrifarík og vönduð vinnubrögð. Meðal annars var sótt í smiðju NRP2000 rannsóknarinnar um mikilvægi þess að kennsla í lestri feli í sér samþætta nálgun sem nái til allra þátta móðurmálsins. Því er vinna með tal, hlustun, lestur og ritun felld saman í eina heild í byrjendalæsi. Ennfremur eru sértækir þættir móðurmálsins, svo sem hljóðvitund, réttritun, orðaforði, setningabygging, málfræði og skrift tengdir inn í ferlið. Meginmarkmið byrjendalæsis er að börn nái góðum árangri í læsi sem fyrst á skólagöngu sinni. Byrjendalæsi gerir ráð fyrir því að hægt sé að kenna börnum sem hafa ólíka færni í lestri hlið við hlið, því er lögð áhersla á hópvinnu um leið og einstaklingsþörfum er mætt. Í fyrirlestrinum verður aðferðin kynnt og sagt frá árangri. Ef tími vinnst til verður sýnd kennslumynd um Byrjendalæsi.
Byrjendalæsi
Þróunarverkefni
Rósa Eggertsdóttir sérfræðingur
Jenný Gunnbjörnsdóttir sérfræðingur
Þóra Rósa Geirsdóttir sérfræðingur
Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir sérfræðingur
Markmið byrjendalæsis er að þróa vinnubrögð í lestrarkennslu í 1. og 2. með það fyrir augum að auka lestrarfærni nemenda. Vinnubrögð taka mið af kenningum um samvirkar aðferðir. Lögð verður áhersla á að nemendur læri að lesa út frá merkingarbærum textum þar sem jöfnum höndum verður lögð áhersla á talmál og reynslu barnanna og textavinnu, samband stafs og hljóðs, sundurgreinandi og samtengjandi aðferðir. Jafnframt verður lögð áhersla á aukinn orðaforða, lesskilning og ritun. Móðurmálsnám verður heildstætt að því leyti að öll vinna tengd lestri og ritun fellur undir vinnubrögð byrjendalæsis.
Veturinn hefst með tveggja daga námskeiði fyrir skólabyrjun en yfir veturinn sækja kennarar fundi/námskeið og njóta í átta skipti stuðnings í formi vettvangsheimsókna og persónulegrar ráðgjafar. Ráðgjafi frá miðstöð skólaþróunar HA annast alla veigameiri ráðgjöf við kennara. Í flestum tilvikum starfar oddviti innan skóla sem verkefnisstjóri og er hann einnig virkur ráðgjafi í verkefninu. Oddviti nýtur leiðsagnar ráðgjafa HA. Mögulegt er að oddvitar hvers skóla verði ráðgjafar kennara innan síns skóla undir leiðsögn ráðgjafa HA. Í slíku fyrirkomulagi hefur ráðgjafi HA yfirumsjón með verkefninu, heldur haustnámskeið fyrir kennara en er eftir það fyrst og fremst leiðsögumaður oddvita. Auk fundar í ágúst sækir oddviti þrjú sex tíma námskeið yfir veturinn sem ráðgjafi. Ráðgjafi og oddvitar hafa að öðru leyti samskipti með tölvupósti og símafundum. Skólar á sama svæði geta sammælst um aðild að verkefninu og deilingu kostnaðar.
Bætt skilyrði til náms - nám án aðgreiningar
Námskeið
Ingibjörg Auðunsdóttir sérfræðingur
Á námskeiðinu er fjallað um nám án aðgreiningar og kynnt hvernig fjórir afburðaskólar í Evrópu, þar af einn á Íslandi, stóðu að því að mæta afar fjölbreyttum þörfum nemenda sinna. Fjallað verður um skilyrði sem hver skóli þarf að vinna að til að vænta megi árangurs á þessu sviði. Þau eru:
- Undirbúningur fyrir grunnskólagöngu
- Skipulag námskrár
- Kennsluhættir
- Samstarf og samhæfing
- Félagsleg samskipti nemenda
- Samstarf heimila og skóla
- Námsmat og mat á skólastarfi
- Stoðþjónusta
- Starfsþróun
Á námskeiðinu skiptast á fyrirlestrar, umræður og verkefnavinna. Lengd námskeiðsins má laga að þörfum þátttakenda.


