
Þú þarft bara að sanna þig:
Reynsla kvenna af námi og starfi sem telst óhefðbundið fyrir kyn þeirra
- húsasmíði og tölvunarfræði
Fræðslufundur haldinn að Sólborg við Norðurslóð, 6. október 2011 kl. 15:20-16:20 í L-202
Katrín Björg Ríkharðsdóttir kynnir rannsókn á reynslu kvenna sem stundað hafa nám sem ekki telst hefðbundið fyrir kyn þeirra. Þátttakendur í rannsókninni voru alls átta. Fjórar konur sem lokið höfðu námi í húsasmíði og fjórar konur sem lokið höfðu námi í tölvunarfræði. Rannsóknin er eigindleg og byggir á femínískri rannsóknarnálgun þar sem stuðst er við aðferðir Vancouver-skólans í fyrirbærafræði. Markmið rannsóknarinnar var að auka skilning á upplifun og reynslu kvennanna m.a. með það í huga að vera innlegg í jafnréttisumræðu í samfélaginu í þeirri von að hægt væri að nýta niðurstöðurnar til að þróa jafnréttisstarf í skólum og atvinnulífi.
Niðurstöður rannsóknarinnar eru m.a. þær að konur sem stunda nám í karllægum greinum mæta gjarnan hindrunum en mismiklum þó eftir eðli þess náms sem þær stunda. Þannig urðu húsasmiðirnir sem sinna líkamlegri störfum meira varir við beina fordóma heldur en tölvunarfræðingarnir. Meðal tölvunarfræðinga finnst þó meiri verkaskipting milli kynjanna heldur en húsasmiðirnir upplifðu. Kynjakerfi Walby birtist í reynslu kvennanna en þær eiga þó allar sameiginlegt að hafa ögrað hinu félagslega yfirráðakerfi með námsvali sínu. Niðurstaðan er þó sú að kynjakerfið hafi ögrað þeim til baka með aðskilnaði og undirskipun svo sem verkaskiptingu, efasemdum um hæfni, launamuni og áreitni.


