Háskólinn á Akureyri

Grunnnám í auðlindafræði er þriggja ára nám. Hægt er að velja um eftirfarandi

Fjarnám í auđlindafrćđum

Grunnnám í auðlindafræði er þriggja ára nám. Hægt er að velja um eftirfarandi faggreinar:
   Líftækni
   Sjávarútvegsfræði
   Náttúru- og auðlindafræði diplóma

Einkenni námsins er þverfagleg nálgun þar sem saman fara nám og rannsóknir í raunvísindum og tæknigreinum samhliða áherslum á hagfræði, stjórnun og markaðsfræði. Slík menntun er forsenda góðrar auðlindastjórnunar og skipulags, og ýtir undir sjálfbæra nýtingu auðlinda og verðmætasköpun.

Hvar verður námið í boði?
Námið er í boði óháð staðsetningu.

Nám og kennsla
Við miðlun námsins verður mest stuðst við rafræn kennslukerfi, heimasíður kennara og upptökur úr dagskóla. Í þeim námskeiðum sem eru samkennd með viðskiptafræði fer kennsla fram um myndfundabúnað. Kennsla í verklegum þáttum námskeiða fer fram í lotum, tvisvar sinnum ein vika á misseri og er þá nauðsynlegt að nemendur komi til Akureyrar.

Hvenær er kennt?
Kennsla er að mestu leyti óháð stund og stað. Þau námskeið sem kennd eru á myndfundum eru að jafnaði eftir kl. 17:00 á virkum dögum eða á laugardögum.

Hópstærðir
Almennt verður námskeið ekki kennt nema heildarfjöldi skráðra nemenda í námskeiðinu sé a.m.k. tíu.

Upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Ása Guðmundardóttir, skrifstofustjóri viðskipta- og raunvísindasviðs, í síma 460 8037, netfang: asa@unak.is.

„Sjávarútvegsfræði er þverfaglegt nám sem gefur möguleika á fjölbreyttu meistaranámi. Þú færð víðtæka þekkingu á sviði sjávarútvegs, raunvísinda og viðskipta.“

Gústaf Línberg Kristjánsson
nemandi
 

   
Blar Gulur Hvitur
A A A
Hjörtur Ágústsson

„Ég flutti frá Reykjavík til Akureyrar til ađ stunda nám í nútímafrćđi. Námiđ var lćrdómsríkt ekki síst ferđ mín til Indlands í skiptinám. “

Hjörtur Ágústsson kynningarfulltrúi hjá Evrópu unga fólksins
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf