
Auðlindadeild Háskólans á Akureyri býður þriggja ára, 180 ECTS eininga, nám sem lýkur með B.S. prófi í líftækni eða sjávarútvegsfræðum. Nemendur eiga einnig þess kost að hljóta diplóma í Náttúru- og auðlindafræðum að loknum 60 eða 120 ECTS einingum.
Markmið BS-námsins er að búa nemendur undir störf í atvinnulífi og framhaldsnám í alþjóðlegu og krefjandi umhverfi.
Námið er almennt háskólanám í náttúru- og lífvísindum með áherslu á nýsköpun og sjálfbæra nýtingu auðlinda. Einkenni námsins er þverfagleg nálgun þar sem saman fara nám og rannsóknir í raunvísindum og tæknigreinum samhliða áherslum á hagfræði, stjórnun og markaðsfræði. Slík menntun er forsenda góðrar auðlindastjórnunar og skipulags, og ýtir undir sjálfbæra nýtingu auðlinda og verðmætasköpun. Námið byggir á langri reynslu Háskólans á Akureyri á sviði auðlindafræða og veitir traustan grunn í helstu kenningum og aðferðafræði náttúruvísinda. Þannig nýtist námið vel þeim sem að því loknu vilja dýpka þekkingu sína á því sviði eða halda í aðrar áttir.
Fyrstu tvö árin eru að mestu sameiginleg öllum línum með ákveðnu vali tengt áherslusviði nemandans. Nemendur sem ljúka 120 ECTS eininga diplómanámi geta lokið 60 ECTS einingum til B.S. prófs sem í boði eru við Háskólann á Akureyri og við Háskólann á Hólum eða haldið til náms við aðra háskóla.
Framhaldsnám
Boðið er upp á framhaldsnám í til M.S. prófs í auðlindafræðum með áherslu á líftækni og sjávarútvegsfræði. Námið tekur tvö ár og er 120 ECTS eininga alþjóðlegt rannsóknatengt meistaranám, þar sem 60 – 90 ECTS einingar eru sjálft meistaraverkefnið, og 30 - 60 ECTS einingar í námskeiðum. Námskeiðshluta meistaranámsins tekur nemandinn að hluta við viðskipta- og raunvísindasvið og að hluta við aðra innlenda eða erlenda háskóla samkvæmt ákvörðun meistaraprófsnefndar hverju sinni. Megináherslan er á meistaraverkefnið og að nemendur tileinki sér vísindaleg vinnubrögð. Frekari upplýsingar er að finna í námskrá fyrir meistaranám.


