Háskólinn á Akureyri býður einn íslenskra háskóla upp á 180 ECTS eininga nám í líftækni til B.S.- gráðu. Námið tekur þrjú ár eða sex misseri og próf eru í lok hvers misseris. Í náminu er lögð rík áhersla á að kynna nemendum líftæknilegar aðferðir við að nýta náttúruauðlindir með nýjum hætti, koma afurðum slíkrar þróunar á markað og að benda á möguleika líftækninnar í fiskeldi og umhverfismálum. Hér má nefna matvælaiðnað, orkuiðnað og verkefni á sviði heilbrigðismála. Skipulag grunnnámsins er með þeim hætti að á fyrsta ári eru kenndar raungreinar sem byggja undir það sem á eftir kemur, sérhæfðari líftækni- og viðskiptagreinar eru kenndar á öðru og þriðja ári með það að markmiði að gera nemendur eftirsótta til starfa í fjölbreyttum verkefnum á sviði líftækninnar.
Hvað er líftækni?Með líftækni er átt við hvers konar notkun lifandi frumna, þeirra á meðal erfðabreyttra lífvera eða hluta þeirra. Líftækni er notuð við iðnaðarframleiðslu og til rannsókna, auk margs konar verkefna í matvæla-, fóður-, lyfja- og snyrtivöruframleiðslu. Líftækni nýtist einnig beint og óbeint við umhverfisvernd, til dæmis við hreinsun á mengunarefnum í umhverfi. B.S.-próf í líftækni veitir sterkan þverfaglegan grunn sem nýtist vel til frekara náms og til starfa á ýmsum sviðum líftækninnar.
|
Áherslur
|
Samstarf
Auk fastra kennara Háskólans á Akureyri koma að kennslunni sérfræðingar frá fyrirtækjum og stofnunum sem sinna
sérfræðistörfum í líftækni, til dæmis frá Matís ohf., Hafrannsóknastofnun, Náttúrufræðistofnun
Íslands, Prokatín ehf., BioPol ehf. og ORF Líftækni hf.
Framhaldsnám
B.S.-próf frá auðlindadeild HA er
góður grunnur fyrir framhaldsnám í fjölmörgum greinum náttúru ísinda, hvort sem er við innlenda eða erlenda háskóla.
Nemendum með B.S.-próf frá deildinni gefst jafnframt kostur á rannsóknartengdu meistaranámi við deildina.
|
„Fyrir mér var líftækninámið við HA aðlaðandi vegna sérstöðu sinnar og tengingar við viðskiptafræðilega hlið fagsins. Smæð skólans gerir það að verkum að öll kennsla er persónuleg og rannsóknaraðstaða fyrir hvern og einn nemanda er til fyrirmyndar. Ég valdi námið því ég taldi að það myndi opna mér margar dyr og hef ég sífellt styrkst í þeirri trú.“ Ástríður Ólafsdóttir |
![]() |



