Hįskólinn į Akureyri

Háskólinn á Akureyri býður, í samstarfi við Háskólann á Hólum, 

Nįttśru- og aušlindafręši diplóma

Háskólinn á Akureyri býður, í samstarfi við Háskólann á Hólum,  diplómunám í náttúru- og auðlindafræðum, 120 ECTS einingar. Nemendur sem klára diplómunámið geta ákveðið nánar um framhald að þessum tveimur árum loknum. Möguleiki er að klára þriðja árið til B.S.-gráðu við auðlindadeild HA eða ljúka B.S.-gráðu í fiskeldi frá Háskólanum á Hólum. Þá er einnig hægt að halda til náms við aðra háskóla í tengdum fögum.

Námið er almennt háskólanám í náttúru- og lífvísindum og byggir á langri reynslu Háskólans á Akureyri á sviði auðlindafræða og veitir traustan grunn í helstu kenningum og aðferðafræði náttúruvísinda. Þannig nýtist námið vel þeim sem að námi loknu vilja dýpka þekkingu sína á því sviði eða halda í aðrar áttir. Námið er að mestu sameiginlegt öðrum línum deildarinnar og nýtist þeim vel sem ekki hafa ákveðið í upphaf háskólanáms hvert skal stefna.

Margvíslegir möguleikar

Langflest námskeiðin eru kennd á íslensku en einnig eru námskeið kennd á ensku. Nemendur geta tekið hluta námsins erlendis eða við aðra háskóla á Íslandi eða fengið nám frá öðrum háskólum metið til eininga. Þá gefst nemendum kostur á að vinna verkefni í tengslum við fyrirtæki og stofnanir. Nemendur öðlast mikilvæga þekkingu á náttúru og umhverfismálum og hvernig þessar auðlindir má nýta með sjálfbærum hætti auk þess sem nemendur sem það velja í framhaldinu fá mikla þekkingu á líftækni og sjávarútvegsmálum eða fiskeldi.

Reynslan hefur sýnt að brautskráðir nemendur Háskólans á Akureyri í auðlindafræðum eru mjög eftirsóttir á vinnumarkaði og hafa forskot í framhaldsnámi á háskólastigi.

Áhersla á rannsóknir
Mikil áhersla er lögð á að bjóða nemendum vandaða kennslu í vísindalegum vinnubrögðum með verklegum æfingum, vettvangsferðum og með vinnu í verkefnum. Þeir sem kenna við deildina hafa allir mikla reynslu af rannsóknum sem tryggir aðgang nemenda að nýjustu þekkingu á þessu sviði. Einnig gefast nemendum tækifæri til að vinna með kennurum í rannsókna verkefnum þeirra sem oftar en ekki tengjast atvinnulífi og fyrirtækjum.

„Diplómanámið er hugsað fyrir þá fjölmörgu stúdenta sem vilja læra náttúru- og lífvísindi en hafa ekki gert upp hug sinn hvert skal stefna að loknu stúdentsprófi. Það er einnig sérstaklega hugsað fyrir þá sem vilja halda áfram í fiskeldisnám á Hólum. Þeir sem vilja halda áfram við HA geta þá valið líftækni eða sjávarútvegsfræði. Kjósi nemandinn svo getur hann horfið til náms við aðra háskóla með gott veganesti af ECTS einingum. Þá getur diplómanámið verið áhugaverður kostur fyrir kennara sem vilja dýpka þekkingu sína í náttúru- og lífvísindum.“

Hjörleifur Einarsson
formaður auðlindadeildar
 

   
Blar Gulur Hvitur
A A A
Įslaug Karen Jóhannsdóttir

„Fjölmišlafręšin er nż og spennandi nįmsgrein og žess vegna valdi ég hana.“

Įslaug Karen Jóhannsdóttir blašamašur į Skessuhorni
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf