Fræðasviðsfundur
Fræðasviðsfundur er að jafnaði haldinn einu sinni á misseri og fer með æðsta vald í málefnum fræðasviðsins.
Á fræðasviðsfundi eiga sæti allir fastráðnir starfsmenn fræðasviðsins, fulltrúi stundakennara og tveir fulltrúar nemenda.
Deildaráð
Deildaráð kemur að jafnaði saman tvisvar í mánuði. Það fer meðal annars með æðsta vald fræðasviðsins á milli
fræðasviðsfunda og málefni einstakra nemenda. Í deildaráði sitja forseti fræðasviðsins, staðgengill forseta, formenn
deilda, fulltrúi kennara frá hverri deild og fulltrúi nemenda.
Deildarfundir
Deildarfundir eru að jafnaði haldnir tvisvar í mánuði. Á þeim er fjallað um dagleg málefni viðkomandi
deildar. Á deildarfundum eiga sæti formenn deilda, fastir kennarar, fulltrúi stundakennara og fulltrúi nemenda.
Náms- og matsnefndir deilda
Náms- og matsnefndir deilda sjá um að undirbúa breytingar á námskipan deilda og fjallar um
beiðnir nemenda um mat á námi, sbr. reglur um náms- og matsnefnd í viðskipta- og raunvísindasviði.
Erindi til stjórnsýslu fræðasviðsins
Erindi til stjórnsýslueininga fræðasviðsins skulu berast a.m.k. viku fyrir fund til skrifstofu fræðasviðsins, dagsett og undirrituð.


