Háskólinn á Akureyri

Ath. Ekki verða teknir inn nemendur í umhverfis- og orkufræði haustið 2012 Háskólinn á Akureyri

Umhverfis- og orkufræði

Ath. Ekki verða teknir inn nemendur í umhverfis- og orkufræði haustið 2012

Háskólinn á Akureyri býður einn íslenskra háskóla upp á 180 ECTS eininga nám í umhverfis- og orkufræðum til B.S.-gráðu. Námið tekur þrjú ár, sex misseri, og próf eru í lok hvers misseris.

Hvað eru umhverfis- og orkufræði?
Námið er almennt grunnnám í raungreinum með megináherslu á náttúruvísindi: jarðvísindi, líffræði, haffræði, veðurfræði, vistfræði, vatnafræði, áhrif mengunar á umhverfi, auðlindanýtingu og auðlinda stjórnun svo og umhverfismat og umhverfisskipulag. Kennt er um nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa, jarðvarma, vatnsafl, sólarorku, vindorku, sjávarfallaorku, eldsneyti úr lífmassa, auk efnarafala og vetnis sem orkubera. Áhersla er lögð á tæknilega þætti orkumála, orkubúskap og nýtingarmöguleika, sjálfbæra orkuöflun, stjórnun orkumála og mörkun orkustefnu. Nemendur öðlast skilning á helstu náttúrulegum ferlum og áhrifum mannsins á umhverfi sitt, hringrás vatns, landmótun, myndun og eyðingu lands, rof, aðstæður í lífríkinu, veðurfar og veðurfarsbreytingar. Jafnframt er markmið námsins að nemendur geti tekið þátt í vinnu íslenskra orkufyrirtækja við sjálfbæra orkuvinnslu um allan heim. Jarðhiti finnst víða en hvergi er jafnstór hluti húsnæðis hitaður með jarðhita eins og hér á landi og vinnsla raforku með jarðhita hefur vaxið hratt á örfáum árum. Litið er til Íslendinga sem frumkvöðla í nýtingu jarðhita enda hafa þeir verið í fararbroddi í grunnrannsóknum í jarðvísindum og jarðhitafræðum.

Umhverfis- og orkumál
Umhverfis- og orkumál munu skipta miklu og hafa vaxandi þýðingu í framtíðinni. Sviðið stendur á krossgötum, orkugjafar eins og olía, kol og jarðgas verða að víkja fyrir nýjum, vistvænni og endurnýjanlegum orkugjöfum. Þörf er mikillar skipulagsvinnu og rannsókna til að þróa nýja orkugjafa og koma í veg fyrir skaðleg áhrif orkuvinnslu á umhverfið. Leita þarf leiða til að losa koltvíoxíð (CO2 ) og brennisteinsgas (H2S) úr jarðhitagufum og binda það á einhvern hátt.

Mengunar- og samgöngumál tengjast mjög umhverfis- og orkumálum. Bifreiðar eru að breytast og verða vistvænni og sparneytnari. Víða er stefnt að vetnissamfélagi og rafvæðingu samgangna og eru Íslendingar þar í fararbroddi. Fiskveiðar geta verið orkufrekar og haft mikil áhrif á umhverfið. Sama gildir um landbúnað og báðar þessar atvinnugreinar munu breytast í takt við tímann og nýja orkugjafa. Umhverfismál – gjarnan tengd orkuvinnslu og nýtingu – verða eitt mikilvægasta og vandasamasta viðfangsefni í fyrirsjáanlegri framtíð og mikið er undir því komið að það takist að gera orkubúskapinn sjálfbæran.

Vinnumarkaðurinn
Að námi loknu hafa nemendur farið í fjölbreytt störf hjá orkufyrirtækjum, verkfræðistofum, sveitarfélögum, ríkisstofnunum, ráðuneytum, framleiðslufyrirtækjum á ýmsum sviðum o.fl. Störfin spanna m.a. gagnaöflun, rannsóknir, umhverfiseftirlit, stjórnsýslu, umhverfismat og skipulag. Námið er góður grunnur fyrir heilbrigðisfulltrúa sveitarfélaga, fyrir raungreinakennara á efri stigum grunnskólans og sem undirstaða að framhaldsnámi á ýmsum sviðum, t.d. við RES orkuskóla (School of Renewable Energy Sciences) sem starfræktur er á Akureyri.

 

„Ástæðan fyrir því að ég valdi nám í umhverfis- og orkufræðum er sú að ég hef mikla trú á þessum geira sem uppsprettu ýmissa tækifæra og möguleika í framtíðinni. Við jarðarbúar erum sífellt að verða háðari orkunni og verkefni sem leysa þarf í þessum málum verða án efa mýmörg á komandi árum. Að mínu mati býr HA svo vel að eiga virkilega gott fagfólk á þessu vísindasviði og eru gæði kennslunnar til fyrirmyndar. Ef þú hefur áhuga á þessum málum, þá er nám í umhverfis- og orkufræðum við Háskólann á Akureyri framtíðin.“

Jón Helgi Sveinbjörnsson
nemandi í umhverfis- og orkufræði 

   
Blar Gulur Hvitur
A A A
Jón Ingi Björnsson

„Þverfagleiki náms við HA gerir manni kleift að sjá hlutina í nýju ljósi. Ég sé ekki eftir því að hafa valið HA. “

Jón Ingi Björnsson sjávarútvegsfræðingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf