Stúdentar sem lokið hafa námskeiðum á háskólastigi, sem eru sambærileg við þau námskeið sem í boði eru við
Viðskipta- og raunvísindasvið HA, geta óskað eftir því að fá námskeiðin metin.
Sótt er um mat á fyrra háskólanámi á sérstöku umsóknareyðublaði (hér) og skal því skilað til skrifstofu Viðskipta- og raunvísindasviðs ásamt fylgigögnum fyrir 15.
júní og 1. október (fyrir haustmisseri) og 15. desember og 1. febrúar (fyrir vormisseri).
Gögn sem þarf að leggja fram:
- Útfyllt umsóknareyðublað þar sem fram kemur hvaða námskeið fá fyrra námi umsækjandi sækir um að fá metin og nöfn námskeiða sem eru sambærileg í náminu við HA
- Staðfest afrit af námsferli frá viðkomandi háskóla þar sem fram kemur númer og heiti námskeiða, einingavægi þeirra (ECTS) og einkunnir stúdents
- Námskeiðslýsingar og/eða kennsluáætlanir og bókalistar frá viðkomandi háskóla frá því ári sem námskeiðin voru tekin
Umsækjendur geta ekki búist við því að fá metin námskeið sem tekin voru fyrir meira en 5 árum nénámskeið með lægri einkunn en 6 (6,5 ef verið er að meta stök námskeið frá Símenntunar- og/eða endurmenntunarmiðstöðvum)
Ekki er hægt að meta námskeið sem eru færri en 6 ECTS einingar.
Mat á fyrra háskólanámi inn í Viðskipta- og raunvísindasvið getur aldrei numið meiru en 120 ECTS einingum.
Sé óskað mats á námskeiði sem notað var til eininga við aðra háskólagráðu, sem lokið er með lágmarkseiningafjölda er heimilt að veita undanþágu frá skráningu í námskeiði, en engu að síður þarf nemandi að ljúka fullum einingafjölda.
Séu einingar sem teknar voru umfram lágmarkseiningafjölda vegna háskólagráðunnar má þó að hámarki meta einingar til jafns við umframeiningar gráðunnar.


