Lögð er áhersla á að nýta þá sérþekkingu sem er til staðar í stofnunum hins opinbera. Samstarfið fer fram með þeim hætti að sérfræðingar stofnananna sjá um umtalsverða kennslu við deildina auk þess sem unnið er að sameiginlegum verkefnum.
Hafrannsóknastofnunin
Útibú Hafrannsóknastofnunarinnar á
Norðurlandi var staðsett á Húsavík frá stofnun þess 1974 til 1990 en var þá flutt til Akureyrar. Sérfræðingar
útibúsins starfa nú í nánum tengslum við Háskólann á Akureyri. Stór hluti starfseminnar felst í að sjá um
sýnatöku úr lönduðum afla á Norðurlandi. Starfmenn útibúsins taka einnig þátt í og leiða ýmis önnur
rannsóknaverkefni við Norðurland. Útibúið er tengiliður Hafrannsóknastofnunarinnar við sjávarútveginn á Norðurlandi.
Útibúið sér einnig um rekstur á 10 tonna rannsóknarbáti, Einari í Nesi EA 49. Hann er útbúinn litlum krana,
handfærarúllum og er með aðstöðu til sjósýnatöku.Útibústjóri Hafrannsóknastofnunarinnar á Akureyri er Hreiðar
Þór Valtýsson, lektor við Háskólann á Akureyri
Líftækninet í auðlindanýtingu
Kennarar og
sérfræðingar líftæknibrautar auðlindadeildar hafa tekið að sér undirbúningsvinnu við að koma á Líftæknineti
í auðlindanýtingu, sem tengist Háskólanum, rannsóknarstofnunum og atvinnulífinu. Líftækninetið er samstarfsverkefni þriggja
ráðuneyta, iðnaðar-, menntamála-, og sjávarútvegsráðuneytis. Iðnaðarráðuneytið og Háskólinn á
Akureyri tóku að sér fjármögnun þessara undirbúningsvinnu. Líftækninetið á að vinna að því að efla
greinina og auka samkeppnishæfni; samhæfa rannsóknartengd þróunarverkefni; auka samstarf og gagnvirka þekkingaruppbyggingu milli
líftæknifyrirtækja, rannsóknateyma og háskólastofnana; og bæta nýtingu fjármagns til þróunar og verkefna á sviði
auðlindalíftækni t.d. með samstarfi við erlenda aðila. Yfirverkefnastjóri Líftækninetsins er Dr. Jóhann Örlygsson, dósent við
Háskólans á Akureyri. Líftækninetið hefur starfsaðstöðu að Borgum
Sjávarútvegsskóli Sameinuðu þjóðanna (UNU-FTP)
Háskólinn á Akureyri á sæti í stjórn Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna, sem rekinn er af
Hafrannsóknarstofnun. Kennarar deildarinnar taka þátt í kennslu einstakra námskeiða skólans og leiðbeiningu með lokaverkefnum nemenda, sem
dvelja þá við Háskólann á Akureyri við verkefnavinnu. Forstöðumaður Sjávarútvegsskóla Sameinuðu
þjóðanna er Dr Tumi Tómasson með aðsetur á Skúlagötu 4 í Reykjavík. Matvælasetur HA hefur umsjón með starfssemi
skólans á Akureyri
Hólaskóli, Háskólinn á Hólum
Þann 11. mars, 2004, var undirritaður samstarfssamningur milli auðlindadeildar Háskólans á Akureyri og fiskeldisdeildar Hólaskóla,
Háskólans á Hólum, um samstarf við rannsóknir og kennslu í fiskeldi og skyldum greinum. Nemendur sjávarútvegs- og fiskeldisbrautar
geta því tekið valnámskeið í fiskeldisgreinum við Hólaskóla. Skólarnir munu samnýta aðstöðu og
tækjabúnað til kennslu og rannsókna, og mun HA m.a. njóta góðs af sérhæfðri rannsóknaraðstöðu í eldi ferskvatns-
og sjávarlífvera að Hólum í Hjaltadal, og nú einnig á Sauðárkróki, þar sem Fiskiðjan Skagfirðingur leggur fram
umfangsmikla aðstöðu sem hentar vel til verklegrar kennslu og rannsókna.
Aðrir aðilar
Af öðrum stofnunum og fyrirtækjum má nefna VGK-Hönnun, Akureyrarbæ, Vatnamælingar Orkustofnunar, Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR), Landmælingar Íslands, Iðntæknistofnun, Umhverfisstofnun, Norðurorku, Exorku, líftæknifyrirtækið
Prokaria, Sæplast, og sjávarútvegsfyrirtækin Samherja og Brim. Jafnframt styrkir Landsvirkjun Háskólann með því að kosta prófessorsstöðu í jarðhitafræðum.


