Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa 100% stöðu lektors í menntunarfræði með áherslu á náttúruvísindagreinar og stærðfræði við Kennaradeild Hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Helstu verkefni eru kennsla á bakkalár- og meistarastigi og rannsóknir á sviði menntunarfræða og kennslu náttúruvísinda og stærðfræði, auk þess að taka virkan þátt í stjórnsýslu innan deildarinnar, akademísku samfélagi og umhverfi háskólans.
Starfsstöð er á Akureyri. Næsti yfirmaður er deildarforseti Kennaradeildar. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2025. Ráðningartími er tímabundinn til fimm ára en viðkomandi getur óskað eftir ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum samkvæmt reglum nr. 726/2023 um ótímabundna ráðningu akademísks starfsfólks við Háskólann á Akureyri. Framgangur í stöðu dósents eða prófessors kemur til greina við ráðningu hafi umsækjandi hæfi til þess að mati dómnefndar.
Við Kennaradeild HA er boðið upp á nám í kennarafræði (B.Ed.), meistaranám til kennsluréttinda (M.Ed. og MT) og rannsóknartengt meistaranám (MA) í menntavísindum. Einnig er boðið upp á diplómanám í leikskólafræði og menntavísindum. Kennaradeild er sem stendur í umsóknarferli um heimild til að bjóða upp á doktorsnám, sem mun styrkja enn frekar rannsóknir og fræðastarf deildarinnar. Nemendur við deildina eru um 450 og starfsfólk 20.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leitað er eftir háskólakennara sem hefur þekkingu á menntunarfræði og getur kennt námskeið á sviði náttúrvísinda og stærðfræði. Sérstaklega er leitað eftir einstaklingi með rannsóknaráherslur á sviði menntunarfræði náttúruvísindagreina og/eða stærðfræði. Mikilvægt er að kennari sem ráðinn verður taki virkan þátt í daglegu akademísku samfélagi háskólans og nærsamfélagsins á Norðurlandi.
Hæfniskröfur
- Umsækjandi skal hafa þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með áliti dómnefndar eða með doktorsprófi frá viðurkenndum háskóla.
- Æskilegt er að umsækjandi hafi leyfisbréf til kennslu og kennslureynslu í leik-, grunn- eða framhaldsskóla.
- Kennslureynsla á háskólastigi telst æskileg og birtingar á alþjóðlegum, ritrýndum vettvangi eru nauðsynlegar.
- Krafist er góðrar hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfni.
- Við mat á umsóknum er tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir þarfir Kennaradeildar.
- Gott vald á íslensku og ensku er nauðsynlegt.
- Umsækjandi sem talar ekki íslensku nú þegar þarf að öðlast vald á tungumálinu á starfstímanum í samræmi við málstefnu háskólans.
Umsókn skal fylgja:
- Greinargóð skýrsla um náms- og starfsferil, fræðistörf og kennslureynslu.
- Staðfest afrit af öllum viðeigandi prófskírteinum á íslensku eða ensku.
- Greinargerð um fyrirhugaðar rannsóknaráherslur og kennslusvið ef til ráðningar kæmi.
- Umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf umsækjanda eftir því sem við á.
- Tilnefna skal þrjá meðmælendur, æskilegt er að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi starfi eða fyrra starfi umsækjanda.
- Þær fræðilegu ritsmíðar sem umsækjandi telur sín bestu verk (allt að þremur ritum). Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.
Umsóknarfrestur er til og með 09.12.2024
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga um háskóla nr. 63/2006, laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, reglur nr. 694/2022 fyrir Háskólann á Akureyri og reglur nr. 724/2023 um nýráðningar akademísks starfsfólks við Háskólann á Akureyri. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir
Guðmundur Engilbertsson, ge@unak.is, sími: 460-8570, og Thomas Barry, tom@unak.is, sími: 460-8028.
Sækja um starf