Á Akureyri er allt sem þú þarft til að stunda nám og njóta lífsins.
Rólegt yfirbragð bæjarins minnir helst á evrópskan smábæ. Undirniðri er iðandi mannlíf öflugs þekkingarsamfélags. Háskólinn á Akureyri er miðpunktur þekkingarinnar og miðlunar hennar.
Nálægðin við náttúruna, öflugt menningarlíf og þjónusta við bæjarbúa auka lífsgæði nemenda.
Á Akureyri búa um 20.000 manns.
Kynntu þér námsframboð HA Kynntu þér félagslífið í HA
Hvernig kemstu á milli staða?
Það er ókeypis í strætó á Akureyri. Kynntu þér leiðakerfi strætó.
Icelandair er með fimm ferðir á milli Akureyrar og Reykjavíkur á virkum dögum og þrjár til fjórar ferðir um helgar.
Taktu börnin með til Akureyrar
Það er öflugt skóla- og tómstundastarf fyrir börn og unglinga á Akureyri. Tekið er vel á móti nýjum nemendum.
Að jafnaði fá foreldrar leikskóladvöl fyrir barn sitt þegar það hefur náð 12 mánaða aldri í ágúst.
Stuðningur er við börn sem eiga erfitt með að aðlagast umhverfi sínu. Fræðsla og meðferðarúrræði byggja meðal annars á PMTO aðferðarfræði.
Foreldrar geta valið leik- og grunnskóla óháð hverfi. Fjölbreyttir möguleikar eru í verknámi og á bóknámsbrautum fyrir framhaldsskólanema.
Kynntu þér þjónustu Akureyrarbæjar.
Tómstundir
Á Akureyri er hægt að finna eitthvað fyrir alla. Matsölustaðir, kaffihús, listsýningar og útivist næra líkama og sál.
Hlekkir sem auðvelda þér að finna afþreyingu við hæfi:
Útivistarsvæði
Menning
Íþróttafélög
Íþróttamannvirki
Tónlist
Heilbrigðisþjónusta
Heilbrigðisþjónusta er góð á Akureyri. Hér er stærsta sjúkrahúsið utan höfuðborgarinnar.
Heilsugæslan sinnir bráðavaktþjónustu á virkum dögum fyrir þá sem þurfa að komast til læknis strax.
Myndband um háskólabæinn og háskólann
VIDEO