Námið höfðar til þeirra sem vilja starfa innan og hafa áhrif á þróun þjónustu heilbrigðis-, sálfræði-, mennta-, og félagsgeirans. Áherslur brautarinnar eru að þú öðlist innsýn og skilning á geðþjónustu, forvörnum og geðheilbrigði, sem er órjúfanlegur þáttur af farsæld og heilbrigði einstaklinga. Námið veitir þér dýpri þekkingu á sálrænum áföllum og ofbeldi og miðar að því að þú öðlist þekkingu til að takast á við áskoranir í þjónustu við fólk sem glímir við afleiðingar áfalla og ofbeldis.

Námið veitir prófgráðuna meistarapróf í heilbrigðisvísindum með áherslu á geðheilbrigðisfræði, sálræn áföll og ofbeldi.

Er námið fyrir þig?

  • Viltu dýpka skilning þinn á geðheilbrigðismálum, þjónustu og rannsóknum?
  • Viltu auka við sérþekkingu þína?
  • Viltu dýpka skilning þinn á sálrænum áföllum og ofbeldi?
  • Vinnur þú með fólki sem glímir við afleiðingar sálrænna áfalla og ofbeldis?
  • Vinnur þú í stjórnsýslu eða í skólakerfinu?

Áherslur námsins

Sigrún Sigurðardóttir og Kristín Linda Hjartardóttir, umsjónarkennarar námslínunnar aðstoða þig við að setja þér markmið innan námslínunnar og velja saman námskeið.

Skyldunámskeið námslínunnar eru fimm, samtals 45 ECTS einingar. Meistaraverkefni er 60 einingar og byggist á rannsókn. Þú hefur svo val um námskeið upp að 15 ECTS einingum.

Þú getur skoðað skipulag námsins á Uglu, kennsluvef háskólans.

Fyrirkomulag námsins

Námið er skipulagt þannig að mögulegt er að stunda vinnu samhliða því. Nemendur vinna verkefni í stað prófa.

Diplóma- og meistaranemendur eru hvattir til að mæta í allar lotur í námskeiðum. Til að standast lágmarkskröfur námskeiðs við framhaldsnámsdeild heilbrigðisvísindasviðs HA þarf nemandi að mæta í að minnsta kosti tvær af þremur lotum í hverju námskeiði sem hann er skráður í.

Umsjónarkennara námskeiðs er frjálst að setja kröfu um mætingu í einhverja ákveðna lotu eða allar þrjár loturnar í námskeiði. Þessar kröfur geta verið mismunandi á milli námskeiða.

Mæting miðar við að mæta á staðinn eða með samþykki umsjónarkennara viðkomandi námskeiðs að mæta í gegnum Fjærveru eða Zoom. Ath. nemandi þarf að fá þjálfun hjá Kennslumiðstöð HA til að geta nýtt sér Fjærveru sem mætingu í námskeið.

Ef nemandi getur af heilsufarsástæðum ekki mætt í lotu verður viðkomandi að hafa samband fyrirfram við umsjónarkennara námskeiðs og skila vottorði til skrifstofustjóra heilbrigðisvísindasviðs, fari umsjónarkennari fram á það. Umsjónarkennari ákvarðar hvaða viðbótarverkefni nemandi þarf að gera í stað mætingarinnar til að standast lágmarkskröfur námskeiðs.

Þú getur tekið meistaranámskeið við Háskólann á Akureyri eða aðra háskóla, innanlands eða utan.

Möguleikar að námi loknu

Brautskráðir nemendur með meistaranám í heilbrigðisvísindum fara í stjórnunarstörf innan heilbrigðiskerfisins, í skólakerfinu, í starfsendurhæfingu og í löggæslu, eða starfa sjálfstætt í stöðum sérfræðinga.

Námið er undirbúningur fyrir þá sem hyggja á doktorsnám.

Inntökuskilyrði

Umsækjendur um meistaranám í heilbrigðisvísindum þurfa að hafa lokið bakkalárgráðu á sviði heilbrigðisvísinda eða skyldra greina með fyrstu einkunn (7,25 eða hærra) frá viðurkenndum háskóla. Ef til aðgangstakmarkana kemur við innritun ganga þeir umsækjendur fyrir sem hafa nú þegar lokið viðbótardiplóma- eða meistaraprófi og/eða hafa 2 ára starfsreynslu úr heilbrigðis- eða velferðargeiranum. Mikilvægt er að öll umbeðin gögn svo sem staðfest afrit af prófskírteinum, ferilskrá, kynningarbréf og starfsvottorð fylgi með umsókn.

Umsagnir

Ég hef afar góða reynslu af meistaranáminu í heilbrigðisvísindum við HA. Ég var á námslínunni Sálræn áföll og ofbeldi og get heilshugar mælt með henni fyrir þá sem vilja auka þekkingu sína á áföllum og áhrifum þeirra á heilsu og líðan fólks. Námið var áhugavert, krefjandi og skemmtilegt. Þverfaglega nálgunin á viðfangsefnin fannst mér sérstaklega heillandi og lærdómsrík. Þar að auki lærði ég rannsóknaraðferðir og vinnubrögð sem nýttust mér vel í áframhaldandi námi og rannsóknum á sviði heilbrigðisvísinda.

Karen Birna Þorvaldsdóttir
Doktor í heilbrigðisvísindum

Ég er sálfræðingur á Kleppi og tók mesitaranám í heilbrigðisvísindum áður en ég tók sálfræðina. Námið er fjölbreytt og skemmtilegt og ekki sakar að hafa möguleikann á að taka það í fjarnámi svo maður getur unnið með. Mæli 100% með HA!

Margrét Tórshamar Georgsdóttir
Sálfræðingur á Kleppi