Hvað kostar nám við HA?

Stúdentar við Háskólann á Akureyri greiða ekki skólagjöld en árlegt skrásetningargjald er 75.000 krónur og greiðslufrestur er 4. júlí.

  • Nýnemar greiða skrásetningargjaldið í samskiptagátt Uglu
  • Stúdentar greiða skrásetningargjaldið í gegnum Uglu í kjölfar árlegrar skráningar
  • Þú getur greitt gjaldið með einni kortagreiðslu eða með kortaláni
  • Með greiðslu skrásetningargjaldsins staðfestir þú skólavist við HA 
  • Þér stendur til boða að greiða skrásetningargjaldið með 15% álagi til 4. ágúst og gjaldið verður þá 86.250 krónur. Ef þú greiðir ekki fyrir þann tíma er litið svo á að þú hafir afþakkað boð um skólavist
  • Skrásetningargjald er óendurkræft
  • Nánar er fjallað um skrásetningargjaldið í reglum háskólans

skrásetningargjald ef nám hefst um áramót

skrásetningargjald er 55.000 krónur ef nám hefst um áramót. Þú greiðir skrásetningargjaldð í gegnum Uglu. Greiðslufrestur fyrir þá sem hefja nám á vormisseri er 10. desember. Eftir þann dag reiknast 15% álag á gjaldið.

skrásetningargjald öryrkja

Þeir sem hafa 75% örorkumat fá 50% skrásetningargjalds endurgreitt gegn framvísum á staðfestingu á örorkumati til nemendaskrár. Greiða þarf fullt skrásetningargjald áður en endurgreiðslu er óskað.