Þverfaglegt framhaldsnám í heilbrigðisvísindum

Markmiðið brautarinnar er að mennta fólk til rannsóknarstarfa, nýsköpunar og þróunar á heilbrigðissviði.

Meistaraverkefni

Þegar meistaranemar hafa lokið öllum skyldunámskeiðum og sérhæfðum skyldunámskeiðum síns kjörsviðs geta þeir sótt um að hefja vinnu við meistaraverkefni. Sækja skal um aðalleiðbeinanda í meistaraverkefni með því að senda tölvupóst til umsjónarkennara meistaraverkefna þar sem fram koma hugmyndir um námsáætlun.

Meistaraverkefni er 60 einingar og byggist á rannsókn. Gert er ráð fyrir að nemandi móti sínar hugmyndir að viðfangsefni og rannsóknaraðferð á meðan á námstímanum stendur. Meistaraneminn getur lokið verkefninu með því að skrifa meistararitgerð eða tímaritsgrein fyrir ritrýnt tímarit á fræðasviðinu. Hann gerir jafnframt grein fyrir niðurstöðum sínum í opnum fyrirlestri við Háskólann á Akureyri eða á öðrum opinberum vettvangi sem leiðbeinandi samþykkir.

Á klínískum áherslusviðum er meistaraverkefni 30 einingar.

Nánari upplýsingar má finna í Handbók deildarinnar sem aðgengileg er stúdentum í Uglu.

Einingafjöldi og tímalengd náms

Nám til meistaraprófs í heilbrigðisvísindum er 120 einingar. Fullt nám á einu skólaári er 60 einingar. Hámarksnámstími til meistaraprófs er 5 ár.

Kjörsvið

Athugið að mörg námskeið eru kennd annað hvert ár og taka þarf tillit til þess við gerð námsáætlunar. Vinsamlegast skoðið skipulag náms í námskrá í Uglu, kennsluvef háskólans.

Heilbrigðisvísindi MS, 120 ECTS