Háskólinn á Akureyri óskar eftir að ráða verkefnastjóra gagnagreininga til starfa. Um er að ræða nýtt og krefjandi hlutverk þar sem unnið er þvert á einingar háskólans að umbótum og framþróun í nýtingu gagna til ákvarðanatöku og stefnumótunar. Unnið er í náinni samvinnu við ýmsar einingar, sérstaklega fjármál og greiningu, greiningarteymi og gæða- og mannauðssvið. Um fullt starf er að ræða með starfsstöð á háskólasvæðinu á Akureyri.
Starfið hentar vel einstaklingi með ríka tölfræði- og greiningarhæfni og áhuga á umbótum og þróun innan háskólasamfélagsins. Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi, hafi yfirsýn og sýni frumkvæði. Mikil samvinna er við stjórnendur og eru því góð samskipti, traust og skýr miðlun lykilatriði í starfinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Söfnun, greining, samræming og birting gagna úr upplýsingakerfum háskólans
- Framkvæmd greininga í tengslum við reiknilíkan háskólanna, fjármögnun og lykilmælikvarða
- Þróun og viðhald mælikvarða sem styðja við stefnumótun og árangursmat
- Mótun og umbætur á ferlum gagnasöfnunar og úrvinnslu
- Kynning og miðlun gagna til stjórnenda og annarra hagaðila á aðgengilegan hátt
- Þátttaka í fjárhagsáætlanagerð, frávikagreiningum og öðrum verkefnum samkvæmt þörfum
Hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, meistarapróf er kostur
- Reynsla af gagnagreiningu og úrvinnslu gagna er nauðsynleg
- Framúrskarandi hæfni í Excel og gagnatólum (s.s. Power BI, PowerPivot, slicers, macros)
- Þekking og reynsla af upplýsingatæknikerfum, s.s. kennslukerfum eða fjárhagskerfum
- Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
- Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
- Nákvæm og skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og sjálfstæði
- Góð þjónustulund og samskiptafærni
Umsókn skal fylgja
- Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil
- Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum
- Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið
- Tilnefna skal a.m.k. tvo meðmælendur, æskilegt er að annar þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda
Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl 2025
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfar einingarinnar við ráðningu.
Nánari upplýsingar veitir
Helga María Pétursdóttir, helgamaria@unak.is og sími 460-8012.
Sækja um starf